04/02/2010

Grosses oder kleines?

Já góðir hálsar, það er náttúrulega bara rugl hvað ég blogga lítið hérna úti. Og til háborinnar skammar. En þú veist, svekk.

Allavega, þá fórum ég og Sigga til Innsbruck fyrir milljón dögum síðan. Fórum náttúrulega fyrst á Liebe Sonne að borða morgunmat. Tókum svo 2ja klukkustunda ferðalag í höfuðstaðinn og löbbuðum helling til að finna banka, og svo mollið. Fundum besta pítsastað í Austurríki í leiðinni, svo það var ekkert nema jákvætt. Það var mjög góð ferð. Planið er að fara aftur til Innsbruck núna á mánudaginn, þ.e.a.s. ef við náum að fá allar frí þá saman.

En já, ég er líka komin með nýja stöðu á veitingastaðnum. Er komin á kassa núna. Það er smá meira gott að geta bara verið í sínum eigin fötum í vinnunni og svo bara vesti, í staðinn fyrir kokkamúnderingunni. Þannig núna er ég meira í því að fylla á kaffivélar, stimpla á kassa, taka við peningum og aðstoða á barnum. Það er indælt. Líkar mjög vel við þetta. En dagarnir gjörsamlega fljúga áfram hérna. Ég er komin í þann pakka að þurfa að fara að ákveða aðeins framhaldið í lífinu.

Er byrjuð að skoða Global volunteering network og svo var ég að sækja um að fá vinnu á októberfest í München í sept-okt við að vera pretzelmädchen. Væri mega til í það.

Er alltaf að verða betri og betri á bretti og er aaalltaf að vinna í því að verða jafn góð og krakkarnir. Það kemur, þó það gerist kannski hægt. Maður fær nefnilega ekki svo marga frídaga hérna að maður geti verið mikið að æfa sig. En núna er farið að dimma aðeins seinna svo núna bráðum getur maður farið að bretta niður úr vinnunni. Þá er leiðin oft samt svo full af klaka og vel troðin eftir daginn, en maður lætur sig hafa það.

Svo þarf maður að fara að sækja um sumarvinnur bráðum. Það er kominn fokkín febrúar. Verð árinu eldri eftir 29 daga. Langar alveg engan veginn að verða tuttugu og EINS árs. Þá þarf maður að verða svo mikið fullorðin. Nenniðíekki. Ætla bara að leika mér aðeins lengur í lífinu og leyfa vinkonum mínum að sjá um það að taka fullorðins pakkann á lífið.

Annars er maður orðin góður í að hella bjór í glös við að hjálpa til á barnum. Ég fæ aldeilis starfsreynslu hérna, því stundum er ég fengin í að hjálpa til að abräumast. Svo það er eldhús, bar, kassi og abräumer. Allt í einum pakka.

Og já. Það skeit barn á gólfið í gær. Einum stórum og góðum. Níu ára stelpa, sem dró bara niður um sig buxurnar og skeit inná veitingastaðnum. Flott. Mamman var látið þrífa það upp.

Og svo um daginn þegar ég, Perla, Sigga og Óskar vorum í skíðalyftunni á leiðinni heim úr vinnunni þá stoppaði kapallinn akkúrat þegar við vorum komin niður. Þá hafði þurft að stoppa lyftuna því í næsta kláf fyrir framan okkur var maður dáinn áfengisdauða og greyið lyftukarlarnir náðu ekki að vekja hann. Þannig þeir náðu bara í vagn sem vörur eru fluttar á, skelltu manninum á vagninn og rúlluðu honum út, enda lyftan að loka. Fyndnasta sem ég hef séð á ævinni.

Og ég er búin að skrá mig í staffið á Jambó 2011. Sjáum til hvort ég fæ það. Væri samt alveg til í að vera barnagæslumanneskja ef ég væri með einhverju úrvals liði eins og Kalla, Dagný, Gunna, Sverre ... eða bara einhverju af gamla ísteinu. Það væri líka sweet ass.

Fengum útborgað í gær. Lífið gæti ekki verið betra.

Hverjum langar með mér í ferðalag?