30/11/2007

Sviti.

Já góðir hálsar.

Ég fór í skólann í gær. Þegar ég kom heim úr skólanum ætlaði ég að leggja mig aðeins, ég var svo uppgefin eftir daginn. Ég vaknaði klukkan sjö í morgun. Í kjölfarið gleymdi ég afmælinu hennar Láru minnar. Ég er að verða vond manneskja.

Útborgunardagur í dag. Ég get unað vel við mitt.

Bara mánuður í að ég flytji niður í miðbæinn inn til Svölu og Kristjönu, nemenda í Kvennaskólanum. Það verður áhugavert ævintýri. Ég hlakka ekkert smá til. Klapparstígur 17, hér kem ég ... bráðum.

Ég fór ekki í skólann í dag. Vaknaði í morgun með höfuðverk, ógleði, hita og mér til yndisauka var ég kósveitt. Það er farin að verða reglulegur liður í lífi mínu. Ég er alltaf sveitt, en samt alltaf kalt. Vegna fjarveru minnar úr skólanum í dag gat ég ekki keypt miða á jólaball MR-inga. Vonum að það reddist einhvernveginn.

Það sem af er deginum hef ég legið uppi í sófa og lesið Inquiry into Life. Það gengur alveg ágætlega að læra undir jólaprófin ..

Mér hefur verið tilkynnt að ég megi ekki drekka næstu 6 mánuði ef ég vilji ekki deyja fyrir aldur fram. Starfsemi lifrinnar hjá mér er í rugli sökum sjúkdómsins og ef ég drekk ofan í það gæti ég átt á hættu að skemma í mér lifrina, sem gæti háð mér ævilangt.

Gaman af því.

Annars rakst ég á grein í tímaritinu Nýtt líf. Mig minnir að hún hafi borið yfirskriftina "Verður þú kærastalaus um jólin" og greinin fjallaði um það hvernig þú ættir að takast á við þann hræðilega hlut. Finnst konum þetta virkilega vera vandamál? Það eina sem mér finnst leiðinlegt við að eiga ekki kærasta núna yfir hátíðirnar er að þá fæ ég ekki einni jólagjöfinni meira.

Eftir 15 daga verða prófin búin.

Þá verður ekkert próflokadjamm á Jóhönnu. Onei, hún verður á bíl ...

,, Snilld er 1% innblástur og 99% sviti.'' - Thomas A. Edison ...

3 comments:

Anonymous said...

Verður Gunnar að flytja hingað?

Kemuru í dag?

var í blóðprufu áðan samt bara eftir skóla vegna prófa

Guð ekki láta mig vera með einkyrningasótt!!!

PLÍSSS
þú átt ekki eftir að vera í vandræðum með að drekka ekki þar sem þú drekkur ekki

ekki ég heldur

Góðan Bata

sakna þín

Systa

Anonymous said...

ÆÆÆJJJI jóhanna svekk með þessi veikindi!!.. þú reddar jólaballs miðaanum held ég alveg, svona tengsl við stjórnarmeðlimi koma sér alltaf vel! þó svo þú verðir á bíl! en ef ég þekki huldu mína rétt þá held ég að hún sé að fara að dettíða:P..

en já láttu þér batna og gangi þér vel að læra:)

Anonymous said...

já mér var fyrst sagt að ég mætti ekki drekka lengi lengi og enginn fótbolti(til að hann fari ekki ´magan og ég deyi)...svo fór ég í blóðprufu fyrir nokkrum dögum og lifrin er nánast komin í lag hjá mér:)=fyllerí..
nei djók ekkert svoleiðis!bara smá...
láttu þér batna:)