17/04/2008

Leiðindatími.

Já góðir hálsar. Nú er kominn sá tími í lífi sérhvers MR-ings, að hann fari að verða leiðinlegur.

Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að prófatörnin er á næsta leyti. MR-ingar umgangast nær því einungis aðra MR-inga, enda fáir sem skilja þessa raun.

Ég er orðin leiðinleg. Ég er byrjuð á prófalestri.

Ég skammast mín að vísu fyrir bloggleysið, en ég hef bara því miður haft svo sjúklega mikið að gera.

Ég hef aldrei áður farið í yfirgripsmikil stúdentspróf, og ég hef aldrei áður verið að vinna í vorprófunum. Þetta verður svo sannarlega áhugavert.

Ég kvíði fyrir öllum prófum, enda hefur þetta skólaár verið sjúklega asnalegt. Ég hef verið svo mikið veik svo lengi.

Var hjá lækni í dag. Fór í blóðprufu. Oj.

Ég er ekki ennþá komin með vinnu í sumar. Ég veit alveg hvar ég enda samt sem áður ...

Vinnuskóli Akraness og leikjanámskeið verður örugglega næsti vinnustaðurinn minn. Ætli ég verði ekki að segja upp í Eymundsson á næstu dögum ...

Eina spurningin sem er eftir er þá hvar ég ætli að búa í sumar. Ætla ég að taka strætó uppá Akranes á hverjum morgni eða ætla ég að flytja þangað?

,,Failure is the opportunity to begin again more intelligently." - Henry Ford ...

No comments: