27/01/2008

Kamelåså.

Já góðir hálsar.

Það að vinna í Eymundsson í Austurstræti er geðveikt. Þú getur skoðað blöðin, lært heima, kynnst helling af nýju fólki ... yndislegt.

Ég hélt innflutningspartýið mitt í gær. Krakkarnir af Skaganum komu í mat. Það var rosa kósí. Þetta var hið ágætasta kvöld, þrátt fyrir að boðflennur hafi borðað matinn minn. Og svo komu ekki allir með gjafir, sem er ófyrirgefanlegt.

Ég vil þakka:

Láru og Magnúsi fyrir glösin.
Perlu fyrir kaffivélina, kaffið, fótabaðsaltið og sjúkrakassann.
Kristínu fyrir ljósaperuna, sprayið og body-lotionið.
Hillu fyrir eplasvampinn og body-lotionið.
Steinari fyrir the Chardonnay.
Berglindi, Ástríði og Maríu fyrir cheeriosið, hvítlaukspressuna, nestisboxið, klósettpappírinn, handsápuna og klósettburstann.
Huldu og Styrmi fyrir ferskjulíkjörið.
Hilmari, Ívari, Siggu, Gísla Baldri, Hákoni og Hillu fyrir málverkið.
Stebba fyrir skrúfurnar.
Pétri, Tómasi, Magnúsi og Stebba fyrir málverkið.

Þið hin. Ég býð ennþá ...

Sumar gjafirnar fóru strax í notkun. Eplasvampurinn var strax notaður, enda gestirnir mínir mjög skítugir. Kaffivélin og kaffið fóru í notkun strax í morgun þegar ég og Svala nutum þess að borða ristað brauð og drekka heitan og góðan kaffidrykkinn. Málverkið frá krökkunum fór strax upp á vegg. Þau sáu sjálf um að hengja það upp. Þrátt fyrir að þau hafi farið í Blómaval með þá áætlun að kaupa ljótasta málverkið í búðinni eru margir mjög hrifnir af því hér á bæ. Kokkurinn vakir að minnsta kosti yfir okkur.

Það er útsala í Eymundsson um þessar mundir. Ég keypti 7 bækur fyrir þúsund kall.

Síminn minn er ónýtur. Gjörónýtur.

Ég held líka að ég sé að veikjast.

,, Það er eins gott að þú sért ánægð. Við eyddum aleigunni í þetta.'' - Sagði Hulda í gær, og það er alveg á hreinu að hún er í miklu uppáhaldi þessa dagana ...

21/01/2008

Ljósaperuskortur.

Já góðir hálsar. Ég er að fara til Rhodos í útskriftaferð í sumar. Hlakka ekkert smá til. Þið megið búast við allmikilli umfjöllum um þann viðburð á næstu ... 195 dögum, þannig ég læt staðar numið hér núna, svo þið fáið ekki endanlegt ógeð.

En nú er komið að því. Þetta blessaða innflutningspartý verður loksins að veruleika næstu helgi. Ég stakk upp á því við alla að gefa mér bara klósettpappír, enda mikill þarfahlutur sem ég fatta aldrei að ég þurfi að kaupa. Reyndar hefði verið sniðugra að stinga uppá ljósaperum, enda eru 7 ljósakrónur hérna í íbúðinni, og það vantar svona 30 perur í þær allar samtals.

Þessi helgi var samt rosalega fín. Á föstudaginn fór ég beint í Rúmfatalagerinn eftir skóla og missti mig gjörsamlega. Ég keypti mér nýja sæng, kodda, púða, gardínur, stígvél, kertastjaka og hillu. Ég á að sjálfsögðu eftir að setja þetta allt upp, enda áttaði ég, kvenmaðurinn, mig ekki á því að það þyrfti kannski skrúfur og nagla til að koma þessu fyrir. Ég á hvorugt.

Svo hitti ég Ragnheiði, Freyju og Ylfu í Kringlunni og við fengum okkur að borða saman. Svo kíktu þær aðeins á íbúðina mína og skelltu sér svo bara heim á Akranesið snemma. Þá kíktu Perla og Hulda í vídjókúr með nammi og snakksósu. Við vorum samt allar mjög þreyttar og slúttuðum partýinu um eittleytið.

Ég var að vinna í Eymundsson á laugardaginn, og það stendur alltaf fyrir sínu. Ég fæ ekki leið á þessari vinnu, enda fýla ég mig rosalega vel. Mömmu og frænku minni lítast samt ekkert á að ég sé að vinna allar helgar. Þeim finnast ég föl og slöpp og vilja að ég fái mér vinnu uppá Akranesi. Málið er bara það, að ég hef ekki efni á að leigja í bænum ef ég vinn ekki allar helgar, og það er ekki nein góð vinna í boði á Akranesi. Það inniheldur allt það sama. Sjoppa, búð eða pítsastaður. Nei takk í öllum tilfellum.

Á laugardagskvöldið var svo kíkt í partý heim til Maríu með Salvör, og það var æðislegt að hitta stelpurnar aftur, enda langur tími liðinn síðan síðast. Engin af okkur ætlar að vinna aftur í Ölver í sumar. Ástæðan fyrir því er fyrst og fremst peningagræðgi. Eftir það kíkti ég í afmælið hennar Rebekku, bekkjarsystur minnar. Þar var rosalegt fjör og ég skemmti mér konunglega. Eftir það var bara haldið niður í bæ og síðan gistu Ylfa og Dagný hjá mér.

Ég hitti reyndar fasteignasalann minn á Pronto um nóttina, en kallinn var að djamma. Hann tilkynnti mér það að hann hafði selt íbúðina mína fyrr um daginn, en ég vissi það reyndar. Ég var að sjálfsögðu rosalega glöð. Ég keypti íbúðina á 18 milljónir, en seldi hana á 19,6 milljónir, fjórum mánuðum síðar, akkurat þegar markaðurinn er við það að hrynja.

En Adam var ekki lengi í paradís. Venni páer, fasteignasalinn minn knái, hringdi í mig áðan og sagðist því miður verða að tilkynna mér það, að fólkið sem ætlaði að kaupa fékk ekki greiðslumat. Svo íbúðin er ekki seld. En samt, næstum því. Ég varð pínu leið, en það þýðir ekki annað en að vera bjartsýnn.

Einhver vísindamaður er búin að reikna það út, að þetta verði leiðinlegasti dagur ársins. Í byrjun hélt ég að hann hefði rangt fyrir sér. Skóladagurinn var með öllu ágætur. Ég fékk frí í leikfimi og krufði smokkfisk. Fór svo á fund með Heimsferðum og bý til einhver skjöl fyrir Rhodos, eins og sönnum ritara ber að gera. Og svo fæ ég þetta símtal. Kannski að þetta verði bara leiðinlegasti dagur ársins. Hver veit.

Söngvaballið á fimmtudaginn. Ég hlakka til.

Ég þarf að fara í Bónus á morgun. Ég á engan mat. Bara grænmeti.

,, How many times do I have to tell you guys, A FRIKKIN TWELVE GAUGE, gosh! " - Napoleon Dynamite ...

13/01/2008

Róleg helgi.

Já góðir hálsar. Þá er síðustu fríhelginni minni næstu mánuðina að ljúka. Henni var eytt í feitt tjill og óhollustu. Hér eftir verð ég að vinna allar helgar í Eymundsson.

Á föstudeginum komu mamma og pabbi til Reykjavíkur og ég hitti þau í Kringlunni. Mamma gaf mér föt. Síðan var brunað á fund upp í skóla, þar sem tilboð vegna útskriftaferðarinnar yrðu kynnt. Ég vann starf mitt sem ritari samviskusamlega og skrifaði allt niður sem fram kom. Ég hef svo verið að eyða helginni í að sjóða saman einhvern upplýsingabækling um þetta, sem er orðinn fjórar blaðsíður að lengd. Valið stendur eiginlega á milli Rhodos á Grikklandi og Marmaris á Tyrklandi. Ég vil Rhodos.

Á laugardaginn fór ég aftur upp í Kringlu, og keypti mér meira. Eftir helgina er ég gallabuxum, peysu, 3 bolum og 2 nærfatasettum ríkari. Það er stundum yndislegt að missa sig. Ég fékk líka óvænta peningaupphæð á föstudaginn, og mér fannst ég eiga það skilið ...

Gaman að segja frá því hvað ég var ótrúlega dugleg á laugardagsmorguninn. Ég þreif allt eldhúsið hérna á Klapparstígnum og mjög stolt af útkomunni, eftir klukkustundar púl með uppþvottaburstann að vopni.

Ég fór til Akraness á laugardagskvöldið. Las eina bók. Fór á rúntinn með Ylfu, Láru, Magnúsi og Styrmi. Fékk mér svala, svaf lengi. Prestafkvæmið gaf mér svo far heim í bæinn núna í morgun og skoðaði nýju vistarverurnar í leiðinni. Þá höfðu Svala og vinnufélagar hennar á Barnum einmitt tekið sig til um morguninn og málað listaverk á vegginn í stofunni. Ef ég þekki okkur rétt verður ekkert málað yfir þetta á næstunni ...

Svala er samt klárlega karlmaðurinn á heimilinu. Dýrinu tókst að tengja nýju þvottavélina karlmannslaust.

Í augnablikinu er ég södd og sæl. Klukkan að verða átta. Ætli maður glósi ekki aðeins í líffræði og fari svo bara í bólið. Það er svo gaman að fara snemma að sofa.

,, Er Magnús að fara að kúka?'' - Spurði Ylfa í bílnum á leiðinni heim til Magnúsar. Það þurfti ekki meira til, ég vökvaði bílinn og nærstadda vel með svala sem frussaðist út úr mér af hlátri, enda þoli ég piss og kúkabrandara illa ....

07/01/2008

Vorönn.

Já góðir hálsar. Skólinn er byrjaður. Ég er alveg ágætlega sátt. Ég ætla að standa mig betur en síðast og massa öll þessi stúdentspróf í vor sem virðast í augnablikinu óyfirstíganleg hindrun.

Núna hef ég fengið að sjá og fara yfir öll prófin mín. Í stærðfræði fékk ég 8,35. Ég reyndi að finna eitthvað sem gæti hækkað mig upp og gerði það. Ég talaði við stærðfræðikennarann og hann var sammála mér. Ég átti skilið eitt stig til viðbótar. Þá væri ég með einkunnina 8,45 og þyrfti bara 0,05 stig til að hækka mig upp í 9. En nei. Þar sem ég þyrfti þetta hálfa stig tæki því ekki að gefa mér aukastig og hann vildi ekki hækka mig.

Ef þetta hefði verið kennari í FVA ...

Jöfnunarstyrkurinn er ekki ennþá komin, og ég þarfnast hans til að geta borgað leiguna mína. Í augnablikinu er allt mitt sparifé bundið í íbúðinni og ég er blönk. Þegar ég hef selt íbúðina á ég einhverjar milljónir. Vonandi gerist það fyrir páska, því mig langar til útlanda.

Helgin var fín. Ég fór í sumarbústað með IST krökkunum á föstudagskvöldið og það var rosalega kósí. Skelltum okkur í pottinn, spiluðum á spil og nutum félagsskaparins, allt í rafmagnslausum bústað. Eldsnemma um morguninn var svo lagt af stað í bæinn, en ég, Svala, Dagný, Kalli og Sverre skelltum okkur í draumalandið á heimleiðinni. Nema kannski bílstjórinn. Það hefði ekki endað vel.

Ég var að vinna svo á laugardeginum í Eymundsson, og það að taka strætó niðrí Kópavog um helgar er helvíti. Um kvöldið hélt ég starfsmannapartý, og fór mætingin fram úr mínum björtustu vonum. Eða þannig. Við vorum fimm talsins, en það var líka alveg hæfilegt, þar sem við eigum bara fimm stóla. Við borðuðum osta og snakk ásamt því að spila Trivial Pursuit langt fram eftir nóttu. Ég tapaði. Eftir það kíktu nokkrir bekkjarfélagar mínir til mín og svo fór ég að sofa.

Ég var rosalega dugleg í gær, en þegar ég kom heim úr vinnunni fór ég beint niðrí Eymundsson á Austurstræti og reddaði mér meiri vinnu. Þá er ég komin með vinnu allar helgar í vetur. Svo keypti ég skóladótið í leiðinni. Þegar heim var komið fór ég beinustu leið í rúmið og las bók. Ég sofnaði fyrir ellefu og var úthvíld í skólanum í dag.

Annars er allt gott að frétta. Það eru fimm slóvakar að leigja íbúðina mína, sambúðin hérna á Klapparstígnum gengur vonum framar og síðasti meðleigjandinn minn hún Kristjana kemur heim frá Mexíkó á morgun.

Eftir að ég varð blönk, sem sagt núna um áramótin, hef ég einungis átt efni á hollum mat, sem er bara jákvætt. Ef þetta heldur svona áfram verður maður kannski komin í form fyrir bikinítímabilið.

Það er fundur hjá mér í kvöld fyrir markaðsnefnd. Svo er líka MR að taka þátt í Gettu betur um kvöldmatarleytið. Allt að gerast.

Ég er farin að læra.