20/03/2009

Ný gildi.

Á vissan hátt er maður þakklátur fyrir það sem maður hefur gengið í gegn um.

Þetta setur hlutina í samhengi. Lífið, það er að segja.

Þetta sýnir manni hverjir er virkilega til staðar, og hverjir ekki. Sýnir manni hvað er þess virði og hvað ekki. Sumir hafa orðið mér fyrir miklum vonbrigðum. Aðrir hafa komið mér á óvart.

Stundum óskar maður þess að lífið væri fullkomið. Án vandræða.

En þá væri maður ekki sú manneskja sem maður er í dag. Ég er alvöru manneskja fyrir vikið. Ég veit það.

Vinur minn bað mig að brosa um daginn fyrir sig. Ég væri hætt því. Ég gleymi því bara stundum. Vantar kannski tilefni.

Það kemur.

1 comment:

Anonymous said...

Þetta er sko alveg satt hjá þér maður kemst að því hverjir eru vinir manns og hverjir ekki á svona stundum ;) Jóhanna Helga.