Þá er mín orðin árinu eldri. Ætlar þetta aldrei að hætta. Það var bara fínt að vera 20 ára. Maður er að verða svo gamall.
Fólkið í vinnunni var rosalega krúttilegt. Bianca, Nadine, Sanya og Perla gáfu mér 2 afmælismöffins og allir kysstu mig 3 kossa á kinnarnar. Það var alveg frekar vont, sökum þess að ég fór í endajaxlatöku hérna fyrir 5 dögum síðan. Það er ennþá illt, enda var jaxlinn með krókóttri rót svo það var extra erfitt að ná honum. Og tannlæknirinn hér er ekkert lamb að leika sér við. Svona aðfarir hef ég aldrei séð áður.
En jæja. Bara 5 vikur eftir af vinnunni. Það verður svo viðbjóðslega gaman hjá okkur þegar þessu sísoni lýkur, því þá tekur við vika af eintómu bretti og fríi og svo staffapartý í lokin. Og svo interrail með Siggu og Birtu handa mér.
Ég kem heim í lok maí og næ þessu blessaða árgangsmóti. Svo sumarvinna einhverstaðar. Vill ekki einhver bjóða mér vinnu?
Knús&kossar.
No comments:
Post a Comment