Já góðir hálsar. Lítið að frétta héðan úr Ölveri.
Vorum reyndar að kveðja síðasta flokk í gær. Sá flokkur var alveg einstaklega erfiður. Ég er andlega uppgefin. Þessi hópur sem er núna er bara jólin miðað við hinn.
Ég er samt alveg einstaklega ströng við þessi blessuðu börn. Ég fékk staðfestingu á því síðasta daginn. Við starfsfólkið vorum að borða kvöldmat inn í sal síðasta daginn og stelpurnar voru alltaf að banka á hurðina og trufla. Þegar ég var búin að fá nóg labbaði ég að dyrunum, frekar ófrýnileg á svip, og viti menn. Selpurnar sáu mig í glugganum og tóku til fóta. Of hræddar við mig.
Lára kom í heimsókn í gær. Alltaf gaman að fá einhvern í heimsókn. Svo var Katrín Björk að heimsækja Súsönnu áðan, þannig að það er alltaf gestkvæmt.
Ég get ekki beðið eftir Írskum dögum. Þá fæ ég helgarfrí.
Annars brenndist ég illa í framan í síðustu viku. Húðin tók upp á því í dag að flagna af á vissum stöðum þannig að ég er hvít og brún í framan, ekki ólíkt því eins og ég væri með sóríasis.
Í þessum flokki eru reyndar 4 Jóhönnur. Tvö börn og tveir foringjar. Einkar skemmtilegt. Af þessum 2500 Jóhönnum á Íslandi þurfu 4 að vera á sama staðnum þessa vikuna. Stundum er afskaplega leiðinlegt að heita svona algengu nafni.
Nafnið mitt hefur líka mikið að gera með mínar strákareglur. Þær eru nokkrar, en það er ein sem er algild.
Allir sem heita Jóhann eru bannaðir. Pör sem hafa sama nafnið eru fáránleg.
Annars eru börnin æði, staðurinn frábær, starfsfólkið líka æði og starfið í heild sinni mjög fínt. Það eina sem skyggir á þetta starf eru blessuð launin.
Hvað finnst ykkur annars um kynlíf fyrir hjónaband. Það hafa verið miklar umræður við matarborðið hérna upp á síðkastið um það. Í vissum kristilegum söfnuðum er það bannað. Ég veit nú ekki ... mér finnst rugl að banna fólki að gera eitthvað vegna trúar. Við guðlöstum víst þá á hverjum degi, því vín er bannað. Biblían bannar heldur ekki kynlíf fyrir hjónaband. Finnst alveg frekar fáránlegt að við trúum öll því sama, Guð, Jesú og heilagur andi. Samt fara ekkert allir eftir því sem stendur í Biblíunni, túlka það bara eins og þeim sýnist og búa til sértrúarsöfnuð.
Annars vorum við að klára að horfá Apocalypto. Geðveik.
P.s. .... ég þurfti að þrífa upp kúk.
,, Af hverju ertu með svona kúlu á nefinu?'' - Spurði mig ein stelpan í fyrradag ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Eftir að hafa rannsakað strangtrúaða kaþólikka í Afríku á vísindalegan hátt hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þó að þetta fólk segist allt ekki stunda kynlíf fyrir hjónaband þá er það nú samt að hossast á hvort öðru þó það sé ekkert endilega gift. Þannig að líklega er bara best að leyfa þetta þannig að fólk haldi ekki að það fari til helvítis þó það kéli smá, enda á fólk eftir að gera það hvort sem þetta er bannað eða ekki :D
Hey.. af hverju varstu í adgerd? Verd ad fara ad heyra í thér. Ertu einhvertíma í ástandi til thess ad tala í síman? :D
Hvad sagdiru vid stelpuna sem spurdi útí kúluna? ;)
Ásgerdur skrifadi hér ;)
Já, mér er alveg sama hverju fólk trúir. Finnst þetta samt sem áður gamaldags =)
Já Gagga mín, ég er alltaf í ástandi til þess að tala í símann, sem er aðallega eftir 23:00 því þá er ég ekki að vinna.
Ég var í aðgerð þannig að það voru boruð göt á beinið frá nefinu og út í kinnarnar til að koma í veg fyrir frekari sýkingar.
Það hafa nokkrar stelpur spurt um kúluna á nefinu í þessum flokki líka, mér til mikillar mæðu.
Ég segi nú bara oftast að ég hafi einfaldlega fæðst svona, en eftir þessar vikur hér í Ölveri fer ég alvarlega að spá í lýtalækningum.
Hlakka til að fá þig í heimsókn sæta :*
Gvuð eru þá mamma mín og fósturpabbi fáránleg!! thanks!:o.
Væri samt gegt kúl ef ég myndi finna mér mann sem myndi heita Anni því það eru nú ekki margir sem heita það en fáranlega margir sem heita Anna..KÚL!:D
kveðja Anna Kvaran:)
Pör sem heita sama nafni eru fáránleg. Ég held mig við það! :D
Jóhann er á bannlista.
Post a Comment