Já góðir hálsar. Ég hef verið óeðlilega löt við að blogga núna upp á síðkastið. Það er reyndar sökum þess að það er ekkert að frétta, og þar sem ég fylgist ekki með fréttum núorðið get ég lítið tjáð mig um mál líðandi stundar.
Annars er reikningurinn fyrir næsta skólaár ekki kominn. Er það ekki óeðlilegt? Hafa þau kannski gleymt mér? MR-ingar, hafið þið fengið ykkar reikning?
Allavega. Ég veit ekkert með þetta lánadót. Það er víst að dragast alveg svakalega. Svo var Gunnar að kaupa sér jeppa, þvert ofan í áætlun okkar um að eiga engann bíl næsta vetur. Góður leikur.
Mamma var að koma með sængina mína í dag. Og bækur. Mig bráðvantaði hvortveggja. Mér var látin í té ferðasæng fjölskyldunnar þegar ég kom fyrst í Ölver, en hún heldur ekkert á manni hita. Síðustu nætur hef ég sem sagt sofið í sokkum, náttbuxum, bol og peysu. Það er rosalegt fyrir manneskju sem sefur vanast bara í nærbuxum og bol.
Svo fór ég í Borgarnes í dag með Salvör. Ég keypti mér skó í Hagkaup. Var að fatta hvað það er töff búð. Allskonar drasl hægt að kaupa þar. Svo keyptum við líka fullt af nammi og fórum í sund. Þar var maður eins og sardína í dós.
Ég er allavega komin með tan. Allgott skal ég sko segja ykkur. Sofnaði nefnilega í sólbaði í gær. Bruninn síðan þá hefur tekið uppá því að breytast í tan, ólíkt síðasta bruna sem ég fékk. Hann ákvað að flagna af.
Annars sjáið þið bara tanið mitt á Írskum dögum. Get barasta alls ekki beðið eftir að komast í smá andlegt frí, þar sem þessi vinna er eitt stórt líkamlegt frí.
Ég þarf að fara að þvo þvott. Gerði það fyrir 2 vikum. Rosalegur áfangi fyrir mig. Fyrsta skipti á ævinni. Mér finnst ég orðin algjör húsmóðir.
Annars fór vatnið í síðustu viku. Í heilan dag. Hugsiði ykkur. Gátum ekkert sturtað niður, gefið börnunum að drekka eða neitt. Áttum reyndar ávaxtasafa og gos, en það dugði skammt. Við skelltum okkur þá bara í sund í Borgarnesi til að sturta liðið. Geðveikt veður og stelpurnar í þeim flokki voru æðislegar. Ég er komin með uppáhalds börn núna.
Ég þakkaði bara guði fyrir að það var ekkert niðurgangstilfelli þann daginn.
Annars þreif ég upp ælu í dag.
Þarf svo að skrifa það sem stendur á dásemdarbréfunum sem mér voru gefin í lok síðustu viku. Núna get ég alltaf tekið þau fram ef mig vantar smá egóbúst. Ég er víst samkvæmt þeim sniðug, skemmtileg, æðisleg og með flott hár. Fékk reyndar eitt hótunarbréf frá barni líka. Segi ykkur söguna af því seinna. Annars er það bréf orðinn almennur starfsmannahúmor hérna.
,,Sástu Jóhönnu í náttfatapartýinu. Hún dansaði. Ég hélt að hún myndi bara standa og horfa á af því hún er alltaf svo ströng.'' - Sagði ein stelpan í síðustu viku við einn foringjann ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
hææ þetta er dagmar sem þú varst með í hamraveri í 3 flokk og það var alveg rosalega gaman að hafa þig og vonandi eru stelpurnar í hinum flokknum jafn góðar og við.
kv Dagmar úr hamraveri
Það er enginn eins góður og þið ;) sakna ykkar pínu =)
Jesús ég man þegar þú brannst í ölveri seinast, það var ógeðslega fyndið!
Þyrftir helst að setja myndir af því;)
Hlakka til að sjá þig á írskum, kanski afrekum við Freyja það að heimsækja þig fyrir þá annars bara já!
hvað er tan jóhanna en ertu með brúna pilsið eða bolin sem þú saumaðir ef svo er má ég þá fá það til að nota á "ballinu" sem verður um helgina á mótinu
Post a Comment