Já góðir hálsar. Núna eru stelpurnar úti í ratleik. Ég hef þurft að öskra á stelpurnar í mínu herbergi.
Ef maður er ekki að hugga stelpur með heimþrá, þá er maður að þrífa upp kúk, skammta þeim á diskinn, syngja lög eða skamma kvikindin.
Já, stundum eru þær kvikindi. Stelpur geta verið svo illkvittnar. Maður var það alveg sjálfur.
Það er víst allt í volli í Vatnaskógi. Það virkar greinilega illa að hafa stelpur og stráka að vinna saman, einangruð uppí sveit heilt sumar. Fólk hefur enn sínar þarfir.
Ég get ekki beðið eftir Írskum dögum. Þá fæ ég frí heila helgi. Djamm.
Sigga og Hulda ætla að koma. Restin af djamm-krúinu mínu eru á Hróarskeldu eða að vinna með Pólverjum þá helgi. Við hinar verðum þá að standa okkur.
Annars er nefið mitt voðalega einstakt. Það kallast kónganef, eða Roman nose á ensku. Júlíus Sesar félagi minn og ég höfum eins nef. Ég las það allavega á netinu eftir að ég lagðist í rannsóknir. Ég varð að fá staðfestingu á því að ég væri ekki ein um þessi gen. Ég ætla ekki að fara í lýtiaðgerð. Bara hafa fyrirferðamikið hár til þess að jafna hlutföllin.
Búið að vera vesen með lánið frá Íbúðalánasjóði. Ég hélt að það væri vegna þess að við værum ótraustvert lántökufólk. En nei, fasteignasalan ruglaði umsókninni. Vitlausar tölur í vitlausa reiti.
Ef við fáum ekki lánið er ég samt með öruggt skjól í vetur. María sem ég er að vinna með er með laust herbergi til leigu ef í hart fer.
Ég hef farið tvisvar í sturtu á 12 klst. Það eru tímamót í lífi mínu. Ég hata sturtu. Þurfti eina slíka eftir brennó í morgun. Var á barmi astmakasts, en pústið mitt er heima.
Siðmenningin er hætt að toga í mig. Vinir mínir heita Michael Scofield og Meredith Grey.
,, Be the change you want to see in the world.'' - Heyrði þetta í bíómynd ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Ó gvuð ég gleymdi að heimsækja þig í síðustu viku, ég ætla mér að reyna að koma á morgunn ef ég má;)
Hvað eru þær eitthvað voða mikið að kúka á gólfið?
Já vonandi færðu lánið, ég myndi treysta þér!
Hehe takk Lísbet mín ;)
Og nei. Þær kúka ekki á gólfið, heldur í fötin sín. Það verður að skola kúkinn úr fötunum áður en þau fara í þvottavélina. Ég tók það að mér síðast.
*innrás* hahha! Fann bloggið þitt :P Og já, það væri magnað að fá þig sem leygjanda.
Post a Comment