Já góðir hálsar. Dæs.
Eftir ömurlega viku sem einkenndist af því að sofa, horfá sjónvarpið, læra og sofa meira, fékk ég ógeð. Ég gat ekki mögulega hugsað mér að vera veik lengur eftir að hafa legið andvaka heilu næturnar vegna verkja, ælt heilu máltíðunum og leiðst meira en sjálfum ... Ókei engum hefur leiðst eins mikið og mér. Þannig ég ákvað bara að ég gæti þetta ekki lengur. Það eru takmörk fyrir því hvað maður getur skemmt sér vel einn.
Þannig ég ákvað að afneita sjúkdómnum. Hann mun reyndar fylgja mér næstu 6 mánuðina, þar sem munnvatnið mitt er bráðsmitandi. Passið ykkur á að kyssa mig ekki, og ekki nota sama glas og ég, eða borða af sömu samloku og ég. Strákar eru frekar í áhættu. Pas på.
*myndafeinhverjuáhugaverðu*
Ég fór meiraðsegja í starfsþjálfun í nýju vinnunni minni í dag, í þykjustunni full af orku, og ég elska hana meira en allt. Ég elska bækurnar, starfsfólkið og jólaandann. Eymundsson í Smáralind er klárlega málið. Einkennisbúningurinn minn er krúttlegt, grænt lyklakippu-hálsband með engum lyklum á.
Ég er líka búin að ákveða að ég fari í skólann á mánudaginn. Þá þarf ég að skila ritgerð, tveimur skýrslum og taka tvö próf. Ég eeeelska MR.
Á morgun, einkatímar. Ingólfur og Berglind ætla að hjálpast að að leiða mig í gegnum hina óralöngu frumskóga efnafræði, stærðfræði og lífrænnar efnafræði. Reyndar er stærðfræði frumskógurinn ekkert langur. Bara einfaldlega ... til staðar.
Fall. Kemur ekki til greina.
Fékk kort frá bekknum mínum. Framan á var mynd af mér með trefil og ljóst hár. Innan í var ljóð um mig og undirskrift frá öllum, meiraðsegja stærðfræðikennaranum. Þau sögðu mér að láta mér batna. Þau eru sæt.
Starfsfólkið sem er að vinna með mér tók eftir því hvað augun mín eru gul. Af hverju geta þau ekki hætt að vera gul. Þetta er ógeðslegt.
En ókei. Lærdómur á laugardagskvöldi.
Hvenær eignast ég líf ...
,, Ókei, þegar þessi vika er búin, þá á ég mér loksins líf.'' - Segir maður alltaf um leið og einhverri brjálaðri lærdómsvikunni er lokið, en svo kemur alltaf önnur, og önnur, og önnur ....
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Jóhanna ætlar að koma í skólann!!! YESS, kortið kom að gagni ;)
þvílík harka.
Rúna er 17 ára í dag !!!!!
vona að þér batni
mamma heldur að ég sé með sömu leiðinlegu veiki
nei takk ég ætla mér ekki að fá hana
allavega gangi þér vel með prófin og batan og sömuleiðis að ná upp hinum
þú ert ljúgari þú komst ekki í skólann!
Ég var veikur :(
Getur þú sent mér símanúmerið þitt í tölvupósti Jóhanna.
Ég kem uppá klaka fljótlega og datt í hug að það gæti verið gaman að kíkja í heimsókn til þín og Gunnars. Tobbi
Post a Comment