Já góðir hálsar.
Ég var spurð að því í kaldhæðni um daginn af hverju ég skrifaði alltaf svona upplífgandi bloggfærslur. Í tilefni af því hef ég ákveðið að skrifa eina í viðbót.
Ég er komin með ógeð á veikindunum. Það eru að verða tvær vikur síðan ég fór síðast í skólann. Ég hef bara endrum og sinnum orku til þess að læra eitthvað af viti, og ekki nema fjórir dagar í fyrsta próf. Í dag vaknaði ég klukkan fimm í morgun og byrjaði að klóra mér eins og alltaf. Eftir blóð, svita og tár náði ég að lesa fyrstu 30 blaðsíðurnar í eðlisfræðibókinni. Síðan skellti ég mér niður í miðbæinn. Ég fór til Báru Daðadóttur þjónustufulltrúa í Landsbankanum og fékk minn þriðja auðkennislykil. Að sögn bankans var þetta einn sá síðasti á landinu. Ég lofaði að týna þessum ekki líka.
Svo rölti ég í klippingu. Ég, sem hef ekki rennt greiðu í hárið á mér síðustu vikur, ákvað að núna ætti veikindatímabilinu að ljúka. Það er að segja útlitslega séð. Mér líður ennþá veikt.
Eftir ánægjulega stund í þægilegum stól gerði ég heiðarlega tilraun til þess að læra meira. Ég fór á bókasafn Kópavogs. Kom mér vel fyrir í stólnum og tók eðlisfræðibækurnar uppúr töskunni. Eftir 40 mínútur varð ég að gefast upp.
Ég gat ekki einbeitt mér, mig klæjaði svo mikið. Þetta er hætt að vera fyndið gott fólk. Ég er búin að vera með þessi útbrot í 2 vikur, og mig klæjar ekkert lítið í þessi rauðu svæði sem virðast geta stungið sér upp hvar og hvenær sem er. Læknarnir segja mér að klóra mér ekki. Það er bara ekki hægt. Ég er að verða brjáluð.
Ég þaut heim, beint úr fötunum og klóraði mér og klóraði. Ég er enn að.
Verð samt að hætta þessu. Ég er komin með lítil sár út um allt og það blæðir úr sumum. Det går ikke.
Ég hef ekkert að segja. Nema ég ætla í skólann á morgun.
Ég vorkenni mér alveg svakalega í augnablikinu.
,, I cannot live without books. '' - Thomas Jefferson ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
mjög svo upplífgandi að lesa bloggið þitt jóhanna mín ;D mjög lífsglöð þessa stundina!
en gangi þér nú samt vel í prófunum þrátt fyrir þessi veikindi öll sömul!
en hey....ertu ekki að gleyma eitthverju? :P
Jújú Lára mín ...
Ég gleymdi afmælinu þínu!! :O.
Post a Comment