19/11/2007

Spítalavist.

Já góðir hálsar. Á föstudagskvöldið var MR að keppa í Morfís og svo var tebó í kjölfarið. Ég eyddi nóttinni á bráðamóttöku Landsspítalans í staðinn.

Á laugardaginn var embættismannaferð. Ég var á Akranesi, veik.

Á sunnudaginn var ég svo lögð inn á spítalann og þurfti að dvelja þar í sólarhring. Ég hafði ekki haldið neinu niðri í 4 daga, var með vökvaskort og pissaði blóði.

Var greind með þvagfarasýkingu og einkirningasótt. Spurning hvort maður komist í skólann það sem eftir er af önninni. Ég ætla samt að taka jólaprófin. Ég ætla.

Mér leiðist sjaldan jafnmikið og þegar ég er á spítala. Allir vilja stinga mig með sprautum og maturinn er óætur. Magnús, Lára og Ragnheiður komu reyndar í heimsókn og Magnús lánaði mér nokkrar dvd myndir. Annars hefði ég dáið.

Það er leiðinlegt að vera veikur.

,, Dreams have only one owner at a time. That's why dreamers are lonely.'' - Erma Bombeck ...

4 comments:

Anonymous said...

Ástandið á þér ljúflingur! Gaman að lesa um líf þitt, hugsa bara að þú sért meira upptekin en ég - eða munurinn er kannski sá að ég er hætt að nenna að læra. Þú verður að hrista í mig kjark þegar við hittumst um jólin.
Hlakka til að sjá þig.

Með ósk um góðan bata Ásgerður
P.s. Kysstu Ylfu, Freyju, Láru, Magnús og alla frá mér.

Jóhanna said...

Ég skal hrista í þig kjark, ekkert mál. Hlakka líka ekkert smá til að hitta þinns!

P.s. má ekki kyssa neinn næstu 6 mánuði. Ég er smitandi ...

Anonymous said...

jóhanna
við munum taka sleik mission á jólaballinu .ekkert rugl!

Jóhanna said...

Hehe, það væri samt alveg húmor ef hálfur skólinn legðist í rúmið á nýju ári ...

Hulda, we're ON!!