Já góðir hálsar. Þá er ferðinni til Kaupmannahafnar lokið. Ég uppskar allavega glás af fötum, þónokkur hælsæri og sælar minningar. Újé.
Ferðin hófst kl. 04:30 aðfararnótt fimmtudags. Við Hulda fórum í loftið eftir stutt stopp í fríhöfninni. Við flugum með Iceland express og ég bið ykkur fólk, aldrei gera það. Við fórum í loftið, en eftir svona tæpan klukkutíma var okkur tilkynnt það að um tæknilega örðuleika var að ræða og við neyddumst til að snúa við til Keflavíkur. Þar var gert við loftþrýstingsdælu. Allt í allt vorum við í um 5 tíma inni í vélinni. Fimmtudagurinn var ónýtur. Allt að loka þegar á Kongens Nytorv var komið. Þar sótti Gunnar okkur og labbaði með okkur upp Bredgaden, þar sem hann býr. Um kvöldið var farið út að borða með bræðrunum og rætt hin ýmsu málefni yfir borgara á Café Oscar. Á meðan var Hulda í pössun hjá Hillu. Um kvöldið var svo farið á Stellas með Hillu, Huldu, Dagný, Laufey og Siggu Svölu, sem allar eru búsettar í Danmörku í sumar á geggjuðum launum vegna gengis krónunnar. Gott að það kemur einhverjum vel ...
Á föstudeginum var verslað í 8 tíma samfleytt. Það var rosalegt. Ég er enn að jafna mig. Kvöldið var fínt. Ég, Gunnar, Hilla, Hulda og Dagný fórum út að borða á Italiano. Svo var kíkt í bæinn. Það er að segja þau, ég fór bara að leika við Ásgerði.
Á laugardeginum var haldið áfram að versla og svo skelltum við okkur á lífrænt kaffihús með Ásgerði. Eyddum þar góðum tíma. Síðan fór Hulda í pössun til Hillu og ég fór heim með Ásgerði að sjá nýja herbergið hennar. Manni var svo boðið í mat, það er ekki að spyrja að því. Kvöldið var frekar slappt en við kíktum í bæinn. Við Hilla fórum samt bara snemma heim því hún var með svo mikið ofnæmi og ég bara þoldi ekki reykingalyktina sem ætlaði þar allt að kæfa.
Sunnudeginum var eiginlega bara eytt í rólegheit. Pakka niður, reikna útgjöld og borða. Fluginu heim seinkaði að sjálfsögðu um dágóða stund, ekki bara vegna þess að bensínbíllinn sem átti að fylla vélina var seinn, heldur beygði flugstjórinn líka út af vitlausri braut og við flugum til Noregs til að byrja með.
Ég er búin að vera mjög slöpp síðustu daga. Það er járnleysið. Mamma er að láta mig drekka einhvern ógeðisdrykk daglega sem inniheldur 200% af allri járnþörf sem maður þarfnast dags daglega. Ég hefði staðið mig vel í þætti Sveppa og co. hérna um árið.
Brúðkaupið hjá systur hans Benna um helgina. Kjóllinn er kominn í hreinsun.
,, I can help you, closing the eyes you know." - Var óborganleg setning Huldu við þjóninn á Italiano ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment