19/09/2008

Morgunblaðið.

Já góðir hálsar.

Það er heilsíðu viðtal við mig, Svölu og Kristjönu í Morgunblaðinu í dag.

Það er svo fallegt.

16/09/2008

Artic climate impact assessment.

Já góðir hálsar. Langt síðan ég bloggaði almennilega, enda hef ég sjaldan verið eins löt þegar ég á frí. Eins og ég sagði í síðustu færslu, þá seldi ég íbúðina mína.

Áður en ég keypti íbúðina átti ég 2.200.000 inná bankareikningi. Eftir að ég er búin að selja hana á ég 199.908. Verðbólgan er tík. Efnahagurinn á Íslandi er tík.

Um helgina var ég að vinna. Náði samt að fara í tvítugsafmæli, rosalega fjallgöngu og taka stórt vídjógláp. Litið til baka var helgin alls ekki svo slæm. Ég fór í tvítugsafmæli til Dagnýjar með það fyrir augunum að afhenda henni pakkann og kíkja aðeins. Ég kom heim klukkan 4 eftir að hafa skutlað fullum bíl heim. Ég vaknaði klukkan 7 morguninn eftir til þess að mæta í leikfimi. Ójá. Þessi leikfimistími gilti jafn mikið og 8 aðrir, svo ég varð. Við fórum í fjallgöngu. Ekki yfir eitt fjall, heldur mörg.

Þetta var örugglega ein mest krefjandi reynsla lífs míns. Það að læra undir stærðfræðiprófin í 4.bekk bliknar í samanburði. Við löbbuðum frá Þingvöllum yfir í Hvalfjörð, 17 kílómetra, yfir fjöll og firnindi. Ég var komin heim klukkan 5, það er 9 klukkutímum eftir að lagt var af stað. Það var hellidemba, eða réttara sagt sturta himnanna, meirihluta leiðarinnar. Skórnir voru eitt stöðuvatn, nestið blautt og skyggnið hræðilegt. Vá hvað þetta var rosalegt.

Þegar ég kom heim fór ég beint á vídjóleiguna, tók 2 myndir og keypti mér bland í poka. Það var jú laugardagur. Eftir það lagðist ég beint upp í rúm. Horfði á P.S. I love you sem var ömurleg. Síðan sofnaði ég. Þegar ég vaknaði horfði ég á Fargo. Hún er svo rosalega góð. Úff. Hafði séð hana áður, en var knúin til þess að sjá hana aftur.

Annars er ég að fara á nýjustu sýningu óperunnar í október. Var að panta miða áðan. Hlakka ótrúlega til. Kalli ætlar að koma með mér. Það er einstaklega gott að eiga vini sem nenna með manni á svona sýningar. Sérstaklega þegar maður er alltaf sífellt fimmta hjólið hérna á heimilinu.

Ég var í 4.sæti í Twister keppni skólans áðan. Gömlu fimleikahæfileikarnir að segja til sín.

Ég var að kaupa mér bók í gær. The Atlas of lost cities. Ég er búin að safna mér ágætlega góðu magni af sagnfræðibókmenntum. Hef aldrei tíma til að lesa þetta almennilega. Geri það á næsta ári þegar ég tek mér skólafrí.

Þann 1.júní verð ég að flytja af Klapparstígnum. Nema ég vilji finna mér nýja meðleigjendur og leigja áfram. Vil samt frekar fara að vinna á skemmtiferðarskipi. Var að finna mér frábæra stöðu. Deck steward. Þá er maður að raða upp sólbekkjum og gefa fólki handklæði. Svo máttu alltaf fara í land þegar þú átt frí, svo þú skoðar fullt af löndum. Þú ert semsagt í fríi, en samt að skoða heiminn. Maður eyðir nokkrum mánuðum þar, fer svo í interrail eða e-ð, og svo á stúdentagarðana í nám.

Úff. Það er svo gott að vera komin með markmið.

Jæja, ég þarf að fara að glugga aðeins í bækurnar; Impacts of warming artic, Caring for our future: action for Europes environment og Artic climate impact assessment. Það er svo gaman að gera líffræðiritgerð. Svo þarf ég að fara að vinna.

Ég fæ svo sjúklega mikið útborgað í október og nóvember. Þetta nær engri átt. Verð að hætta að vinna svona mikið.

,, Takk fyrir ekkert.'' - Sagði einn róninn í gær eftir að ég hafði afgreitt hann. Síðan skellihló hann ...

10/09/2008

Merkisdagur.

Já góðir hálsar.

Ég skrifaði undir afsal og kaupsamning í dag.

Íbúðin er ekki lengur mín.

Við systkinin töpuðum gríðarlegum fjármunum.

En þúst, svekk.

Jóhanna - ekki lengur íbúðareigandi, og finnst það fínt.

P.s. náði að fá mér 5 klst lúr í dag.

06/09/2008

Sársauki.

Já góðir hálsar. Lífið getur stundum verið einn samfelldur sársauki. Ég fékk að upplifa það á fimmtudaginn. Úff.

Það var busun. Við vorum að hlaupa. Og ég datt. Eða réttara sagt, skall í jörðina með andlitið á undan. Það var ógeðslega vont, en af því ég var grýla, og maður tollerar bara einu sinni á ævinni, þá varð ég að standa upp og halda áfram að öskra.

Ég var með gerviblóð í kring um munninn, en eitthvað af því var reyndar alvöru.

Það var ógeðslega gaman að busa og vera í tóga og allt það. En eftir að ég var búin að sinna hlutverki mínu sem grýla lét ég eiginlega bara undan sársaukanum og hélt mig til hlés. Fór að taka myndir. Eftir að síðasti businn var tolleraður fór ég beint uppá skrifstofu og bað um plástur. Vinstri fóturinn var eitt stórt brunasár, sá hægri samanstóð af tveim minni stykkjum, vörin sprungin og kjálkinn bólginn.

Konan á skrifstofunni átti engan plástur sem var nógu stór. Ég sat þá bara í stól inná skrifstofu að þrífa brunasárin með spritti og barðist við tárin það sveið svo. Busarnir þurftu þá náttúrulega að streyma inn á skrifstofu med det samme og spyrja mig hvað hafi gerst. Ég var alveg einstaklega sorgleg. Ennþá ófrýnileg, eins og grýlum sæmir, með risastóran kökk í hálsinum að segja öllum að það væri allt í lagi með mig. Djöfull leið mér kjánalega.

Mér var svo illt í fætinum allan daginn og allt kvöldið, og er reyndar enn, að ég gat eiginlega ekki skemmt mér nógu vel á busaballinu eða neitt.

Daginn eftir gerði ég lítið annað en að fara í skólann og svo á Akranesið. Það var líka leiðinlegt.

Það er einhvern veginn allt frekar leiðinlegt þessa dagana. Held að það hafi eitthvað að gera með það að ég er veik. Fæ að vita það eftir helgi hvort þetta sé salmonellusýkning eður ei. Ef salómón hefur ekki látið á sér kræla vill doksi setja mig í ristilspeglun.

Lífið er eintómt partý.

Maður má samt ekki vera veikur. Maður þarf að vinna til að geta borgað leigu til að geta verið í skóla. Þótt maður hafi varla orku í hvorugt. Þetta er orðin einn helvítis vítahringur.

Það kom blaðamaður frá Mogganum í fyrradag og tók viðtal við mig, Svölu og Kristjönu. Viðtalið á að birtast í aukablaði Morgunblaðsins sem heitir heimili og hönnun. Það á meðal annars að birta mynd af herberginu mínu, það var víst svo flott ...

Tók upp stuttmynd á miðvikudaginn fyrir kvikmyndagerð. Það var ógeðslega gaman. Minnti mig á gömlu góðu tímana þar sem tónlistarmyndböndin Call on me og Worries of the world voru gerð. Og svo auðvitað stuttmyndin Netjuský.

Það var samt gaman að vinna í dag. Ég vissi svo mikið sem fólk var að spyrja um. Og ég var ekki að afgreiða. Bara að ganga frá bókum. Það er gaman að leika bókanörd.

Annars ætla ég að eyða laugardagskvöldinu í að læra.

,, Drink the pain away.'' - Klárlega setning fimmtudagsins ...

02/09/2008

Magakveisa.

Já góðir hálsar.

Eftir að hafa horft á tíu fréttirnar í kvöld er ég í sjokki.

Nánari útskýringar:

http://www.landlaeknir.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=3686

Ég held ég sé með salmonellu.

Dem.

Annars er það bara ristilspeglun á næstkomandi dögum.

Vúhú.