16/09/2008

Artic climate impact assessment.

Já góðir hálsar. Langt síðan ég bloggaði almennilega, enda hef ég sjaldan verið eins löt þegar ég á frí. Eins og ég sagði í síðustu færslu, þá seldi ég íbúðina mína.

Áður en ég keypti íbúðina átti ég 2.200.000 inná bankareikningi. Eftir að ég er búin að selja hana á ég 199.908. Verðbólgan er tík. Efnahagurinn á Íslandi er tík.

Um helgina var ég að vinna. Náði samt að fara í tvítugsafmæli, rosalega fjallgöngu og taka stórt vídjógláp. Litið til baka var helgin alls ekki svo slæm. Ég fór í tvítugsafmæli til Dagnýjar með það fyrir augunum að afhenda henni pakkann og kíkja aðeins. Ég kom heim klukkan 4 eftir að hafa skutlað fullum bíl heim. Ég vaknaði klukkan 7 morguninn eftir til þess að mæta í leikfimi. Ójá. Þessi leikfimistími gilti jafn mikið og 8 aðrir, svo ég varð. Við fórum í fjallgöngu. Ekki yfir eitt fjall, heldur mörg.

Þetta var örugglega ein mest krefjandi reynsla lífs míns. Það að læra undir stærðfræðiprófin í 4.bekk bliknar í samanburði. Við löbbuðum frá Þingvöllum yfir í Hvalfjörð, 17 kílómetra, yfir fjöll og firnindi. Ég var komin heim klukkan 5, það er 9 klukkutímum eftir að lagt var af stað. Það var hellidemba, eða réttara sagt sturta himnanna, meirihluta leiðarinnar. Skórnir voru eitt stöðuvatn, nestið blautt og skyggnið hræðilegt. Vá hvað þetta var rosalegt.

Þegar ég kom heim fór ég beint á vídjóleiguna, tók 2 myndir og keypti mér bland í poka. Það var jú laugardagur. Eftir það lagðist ég beint upp í rúm. Horfði á P.S. I love you sem var ömurleg. Síðan sofnaði ég. Þegar ég vaknaði horfði ég á Fargo. Hún er svo rosalega góð. Úff. Hafði séð hana áður, en var knúin til þess að sjá hana aftur.

Annars er ég að fara á nýjustu sýningu óperunnar í október. Var að panta miða áðan. Hlakka ótrúlega til. Kalli ætlar að koma með mér. Það er einstaklega gott að eiga vini sem nenna með manni á svona sýningar. Sérstaklega þegar maður er alltaf sífellt fimmta hjólið hérna á heimilinu.

Ég var í 4.sæti í Twister keppni skólans áðan. Gömlu fimleikahæfileikarnir að segja til sín.

Ég var að kaupa mér bók í gær. The Atlas of lost cities. Ég er búin að safna mér ágætlega góðu magni af sagnfræðibókmenntum. Hef aldrei tíma til að lesa þetta almennilega. Geri það á næsta ári þegar ég tek mér skólafrí.

Þann 1.júní verð ég að flytja af Klapparstígnum. Nema ég vilji finna mér nýja meðleigjendur og leigja áfram. Vil samt frekar fara að vinna á skemmtiferðarskipi. Var að finna mér frábæra stöðu. Deck steward. Þá er maður að raða upp sólbekkjum og gefa fólki handklæði. Svo máttu alltaf fara í land þegar þú átt frí, svo þú skoðar fullt af löndum. Þú ert semsagt í fríi, en samt að skoða heiminn. Maður eyðir nokkrum mánuðum þar, fer svo í interrail eða e-ð, og svo á stúdentagarðana í nám.

Úff. Það er svo gott að vera komin með markmið.

Jæja, ég þarf að fara að glugga aðeins í bækurnar; Impacts of warming artic, Caring for our future: action for Europes environment og Artic climate impact assessment. Það er svo gaman að gera líffræðiritgerð. Svo þarf ég að fara að vinna.

Ég fæ svo sjúklega mikið útborgað í október og nóvember. Þetta nær engri átt. Verð að hætta að vinna svona mikið.

,, Takk fyrir ekkert.'' - Sagði einn róninn í gær eftir að ég hafði afgreitt hann. Síðan skellihló hann ...

No comments: