Já góðir hálsar. Hulda, ekki lesa þessa færslu.
Í gær átti ég stefnumót. Ég og bestasti vinur minn, hann Maggi kaggi, fórum saman í leikhús að sjá hann Ladda. Hann klikkar sko ekki. Svo kíktum við á tilvonandi íbúðina mína og fengum okkur pylsu. Afar rómantískt ...
Og nei, Magnús er ekki kærastinn minn. Fékk nokkrar spurningar þess efnis. Við vorum saman í bekk í 10 ár. Frekar erfitt að þróa rómantískar tilfinningar í garð uppeldisbróður síns.
Ég var í skolun áðan. Þá tók blessaður læknirinn sig til og skolaði öllu slíminu út úr kinnunum og nefinu mínu. Það var ógeðslegt.
Þetta gerði hann í morgun, en ég var deyfð. Ég hef notað þá afsökun í allan dag til að friða samvisku mína, því í rauninni ætti ég að vera að læra.
Ég á erfitt með að læra útaf því að ég er á verkjalyfjum, ég er með prófkvíða, ég stend í íbúðarkaupum í stórborginni og ég veit ekki hvort mig langar í MR í haust.
Það er ekki beint hvetjandi að vera að læra undir próf sem úrskurðar um áframhaldandi skólagöngu mína, í skóla sem ég er ekki viss um að mig langi að halda áfram í.
Mig langar alveg í Fjölbraut ... en samt ekki. Eða réttara sagt ég veit það ekki.
Þá væri lífið svo einfalt. Ég gæti búið, unnið, stundað íþróttir og sótt nám á sama staðnum. Ég gæti tekið alla stærðfræðiáfangana aftur og fengið betri einkunnir. Ég gæti verið með þeim bestu í skólanum, í stað þess að vera í hóp meðalnemenda.
Úff.
Mig vantar einhvern sem getur sagt við mig hvað ég á að gera.
Annars er Lára komin heim frá Danmörkunni og gaf mér olíuliti :D
Ég er að byrja að vinna ekki á morgun, ekki hinn, heldur hinn. Þá er úti um námið.
11.júní. Dagurinn sem ákveður fyrir mig í hvaða skóla ég fer í næsta haust.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
ég veit alveg hvar þú átt heima, og þú veist það sjálf ;) þú átt heima í MR og hvergi annars staðar! ef þú lærir bara og hugsar um hvað næsta ár verður miklu léttara...ég skal meira að segja mæta upp á skaga og gera allt það sem ég get!
Það væri örugglega hrikalega erfitt fyrir þig að hætta í MR því að þú þráðir það svo mikið að vera í þessum skóla.
En ef þú kæmir í FVA þá væri allt svo miklu auðveldara, en þú ert þannig að ég veit ekki hvort þú vilt hafa allt auðvelt:)
Þannig ég veit ekki alveg hvað ég á að segja!
Ég veit ekkert heldur, þannig að ég hef ákveðið að láta prófið skera úr um það í hvaða skóla ég fer.
Annars er ég að fara í Ölver eftir sólarhring þannig að ef mig vantar kennslu Perla mín þá yrði hún nú bara símleiðis ;) takk fyrir að bjóða hana =)
6 dagar í prófið ....
Post a Comment