31/05/2007

Stórt stökk.

Já góðir hálsar. Ég er byrjuð að læra. Endurtökuprófið er 11.júní, and I will be prepared.

Hefði samt verið meira kúl að falla í sögu. Þá þyrfti maður bara að lesa mikið, ekki reikna súúúper mikið.

En við vonum að þetta gangi. Verkjalyfin gera mig nú samt dálítið sljóa, þannig það er erfitt að hugsa, og þegar ég snýti mér fæ ég svona tilfinningu eins og það sé að fara að líða yfir mig.

Annars er ég bara búin með 2 kafla. Á bara 26 kafla eftir. Er samt bara búin með svona lítið útaf ég fór til Reykjavíkur í dag með pabba og Gunnari. Við skoðuðum 2 íbúðir á Langholtsveginum og gerðum tilboð í þá flottari. Sjáum hvort því verði tekið eða hafnað. Veit að Hilla verður ánægð með mig ef ég flyt á Langholtsveginn ...

En útaf því að ég er að fara í þessi íbúðarkaup verð ég víst að hætta við Danmerkurferðina í ágúst. Það er alveg nóg að vera 2 vikur í útlöndum í sumar hvort eð er.

Samt svolítið yfirþyrmandi að vera að skrifa undir samninga og þess háttar, þar sem maður er að samþykkja að gefa alla peningana sína. Ég hef alltaf átt þessa peninga, og það verður svolítið leiðinlegt að sjá þá fara burt. Ég verð að játa að það eru takmörk fyrir því hversu mikið stress ég höndla í einu. Það að þurfa að hafa áhyggjur af áframhaldandi skólagöngu minni, sumarvinnunni og peningamálunum, allt í sömu vikunni, gerir hnútinn í maganum dálítið stóran.

Í öðrum fréttum skammast ég mín þegar ég er úti. Ég má ekki anda kalda loftinu að mér og þessvegna þarf ég að hafa klút fyrir nefinu. Ég lít út eins og kúrekaþjófur og fólk horfir á mig. Eða nei, fyrirgefiði, það starir.

En núna fer Lára til Danmerkur í nótt og eyðir helginni þar í skemmtilegheitum með eldra fólki. Á meðan mun ég sitja í bláa skrifborðsstólnum mínum að reikna.

Annars fer ég í klippingu og litun á morgun. Hef ákveðið að verða aftur ljóshærð.

Ég búin að ákveða að það verði enginn heimsendir að fara í FVA. Þar eru 70% af mínum vinum og kunningjum. Þyrfti reyndar að burðast með það á bakinu að vera heimsk og gefastuppari restina af minni skólagöngu, en hey.

Í FVA gæti ég ... verið góð í stærðfræði ... og líka kannski komist aftur inní ljósmyndaklúbb ... og líka kannski verið álitin artí, þótt ég sé það ekki ...

,, Af hverju hringir þessi ljóti kúkur ekki.'' - Sagði Freyja í gær, en ég hef ekki heyrt þessi orð notuð síðan í leikskólanum ...

5 comments:

Anonymous said...

jóhanna ég verð bara stressuð að lesa bloggin þín = of mikið skólatal!;)


við rústum þessu = hvað er það versta sem getur gerst:D

Anonymous said...

já þið rústið þessu:D og eftir að þið eruð búnar þá höfum við almennilegt djamm!! helst 17.júni helgina;)

Jóhanna said...

Ég byrja að vinna 7.júní = ég get ekki djammað.

Annars væri ég alveg til í það ;)

Hulda, þín vegna skal ég hætta að blogga um þetta rugl, enda er þetta bara rugl ;););)

P.s. ég get ekki andað.

Anonymous said...

hei þessir blikkkallar hræða mig meiria;););)
svo bloggaðu kona!

en ertu ekki að gríní mér jóhanna,afhverju fórstu í þessa vinnu ef þú getur ekki gert neitt neinar helgar eða neitt=/??


hulda

Jóhanna said...

Núna, þegar mig vantar pening eins og manni í eyðimörkinni vantar vatn, skil ég ekki af hverju.

Mér til varnar er ég ekki að missa af miklu hér á skaganum sko ;)

Og blogga aftur? Ég er að læra :D