Já góðir hálsar.
Síðasta helgin fyrir skólabyrjun var geðveik. Danskir dagar með meiru og þessháttar skemmtilegheit. Þetta verður vonandi endurtekið við tækifæri. Ég afrekaði að tjalda tjaldinu mínu alein. Og taka það niður alein.
Ég kláraði Harry Potter um helgina. Ég sakna hans.
En já. Í gær byrjaði ég í nýju vinnunni minni. Það var æðislegt. Ég var að vinna í 7 klukkutíma, en mér fannst þeir líða alltof hratt. Ég er orðin atvinnumaður í að brjóta saman föt. Svo skiptir að sjálfsögðu máli hvernig herðatrén snúa, hvernig krókurinn snýr og hvaða herðatré er á hvaða flík. En það er bara gaman. Það besta við þetta er að núna hlakkar maður til að fara í vinnuna.
Skólinn byrjar á fimmtudaginn. Ég er búin að kaupa flestar bækurnar og er bara frekar tilbúin. Ég hlakka ekkert smá til.
Ég flyt inn eftir 10 daga. Ég hlakka ekkert smá til. Ég er búin að pakka ofan í 3 pappakassa. Ekkert smá dugleg. Allar bækur og skólabækur ekki í notkun, ásamt styttum og jólaskrauti eru komnar í kassa. Kommóðan að mestu leyti tóm. Ég hlakka ekki til að pakka fötunum mínum. Það verður hausverkur út af fyrir sig. Það verða nokkrir ruslapokar.
Reyndar á eftir að mála, búa til nýtt herbergi og kaupa hurðir þegar við flytjum inn, þannig ég á eftir að eiga dálítið bágt í nokkra daga eftir flutninga. Ég býst við að rúmið mitt verði bara á miðju stofugólfinu svona til að byrja með.
Á eftir er ég að fara með Láru, Freyju og Ragnheiði til Reykjavíkur. Þær eru að fara að kaupa sér skólabækur og ég og Lára ætlum að kaupa okkur gleraugu. Láru bráðvantar ný gleraugu. Það var stór, hvítur jeppi sem keyrði yfir hennar.
Annars hósta ég grænu slími þessa dagana og snýti því líka. Helvítis haustkvef.
Þið ætlið að taka helgina 1-2.sept frá. Þá ætlið þið að hjálpa mér að flytja =) ....
Lífið mitt í augnablikinu er ein stór tilhlökkun.
,,We can’t solve problems by using the same kind of thinking we used when we created them.'' - Albert Einstein ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ skvís..
Öfunda þig pínulítið að flytja og vera á eigin fótum, mér langar dulítið að prufa það, en þó legg ég ekki í það alein heldur yrði ég að hafa eitthvern mér við hlið. Kannski að ég láti verða af þessu eftir 1 - 2 ár (með kæróinu;))
Skólinn byrjaður í FVA, voðaleg stemming ! Alltaf smá notalegt að komast í skólann á ný.
En við sjáumst gullagull:*
Kveðja Erla Dröfn
Ómígúd já þú mátt sko öfunda mig! :D hehe
Annars segi ég það með þér, það er alltaf notalegt að komast í skólann :)
Vi ses på busaballet ...
Post a Comment