28/08/2007

Sjálfsvorkun.

Já góðir hálsar, þá eru 3 dagar í flutninga. Hef ég nokkuð minnst á það hvað ég hlakka mikið til?

Dagurinn í gær og dagurinn í dag. Fróðlegir.

Báðir morgnar hafa byrjað á tvöföldum stærðfræðitíma og fylgt eftir af eðlisfræðitíma. Yndislegt. Eftir þetta skólaár verð ég búin með 7 einingar í stærðfræði og 9 einingar í eðlisfræði, sem þýðir í heildina 20 einingar í stærðfræði það sem af er af skólagöngu minni. Dágott.

Ég er undirbúin undir það að selja sálu mína fyrir stærðfræðihjálp í vetur, en ég mun þurfa allnokkra. Nú þegar eru 3 búnir að segja sig úr bekknum.

Ég er komin í bekkjarráðið í 5.bekk og mun þar af leiðandi sjá um MR fötin í ár ásamt skipulagninu útskriftaferðar. Ég hlakka til. Hilla er meiraðsegja með mér í ráðinu.

Í dag var ég búin í skólanum kl. 13:10. Strætóinn minn fór kl. 15:45. Ég elska Skagastrætó. Í tilefni af eirðarleysi mínu fór ég á Borgarbókasafnið. Þar er ég komin með bókasafnskort og tók í dag út 2 bækur. Þá er ég tæknilega séð orðin Reykvíkingur. Ég eyddi deginum því ekki í að læra, heldur að hanga á bókasafni. Endurfundur minn við bækur, aðrar en skólabækur, var glaðlegur.

Ég steinsofnaði í strætó. Svaf yfir mig þannig að ég fór framhjá stoppistöðinni minni. Ég sofnaði líka í skólanum í dag. Þessi 5 tíma nætursvefn minn er greinilega ekki nægur. Svekkjandi.

Ég á eftir að læra heima í stærðfræði, íslensku og þýsku. Og pakka.

Af hverju er svona gaman að flytja, en leiðinlegt að pakka?

Ég á svo erfitt líf. Ef þið flettið orðinu sjálfsvorkun í orðabók er mynd af mér.

,, Þið munuð öll, þið munuð öll, þið munið öll deyja. Þið munið stikna. Þið munið brenna ...'' - Sagði Unnar stærðfræðikennarinn minn þegar enginn skráði sig í stærðfræðikeppnina sem verður núna á laugardagsmorguninn. Af hverju er Villi ekki að kenna mér ...

3 comments:

Anonymous said...

mér leið svipað á mánudaginn... tvöföld málvísindi + tvöföld latína. maður er allavega bara á forn 2.

ps: getum við farið eitthvað skemmtilegt í ferðinni?
ps2: og ekki velja ljótar myndir aftan á peysurnar. bara please...

Anonymous said...

já jóhanna ég vorkenni líka sjálfri mér.. sé ekki fram á að eiga líf næsta árið með heimanámi og balletttímum!! og plús það að troða einhverju svona bekkjardóti inn.. og kannski eiga mér líf..
ég er samt super-girl svo þetta ætti að reddast hjá okkur:D

Jóhanna said...

Já, Birta ég hugsa til næsta árs með tilhlökkun. Þá eru allavega 9 tímar á viku í vali ...

Og ég skal gera mitt besta :D

Hilla, þú ert náttúrulega súperkonan mikla þar sem þú átt búninginn ;) ...