03/10/2007

Meiddi.

Já góðir hálsar. Í dag tók ég gríðarlega stóra ákvörðun sem á eftir að hafa áhrif á líf mitt næstu tvö árin, ef ekki lengur.

Ég sótti um að skipta um braut.

Á eðlisfræðibraut var ég ekki beint að brillera í sjálfum aðalfögunum, þ.e.a.s. eðlisfræði og stærðfræði. Reyndar fékk ég 8.1 á stærðfræðiprófinu í gær, og vil ég þakka því andvökunótt fyrir prófið. Það var samt bara einskær heppni. Svo áttaði ég mig á því í eðlistíma í dag að mér finnst eðlisfræði bara dáldið leiðinleg. Allavega ekki nógu skemmtileg til að eyða 9 tímum á viku í hana.

Þess vegna skipti ég vonandi yfir á náttúrufræðibraut á mánudaginn, ef það er hægt, sem ég hef stranglega trú á. Það er hlutlausasta brautin. Ég á ekki að vera á náttúrufræðibraut, ég á að vera á hagfræðibraut, en þar sem MR kennir ekki svoleiðis tek ég bara léttustu náttúrufræðibrautina og tek hagfræði í vali á næsta ári.

Ég er búin að plana þetta allt, þið sjáið.

Og þá eru eftir þrjár stelpur í bekknum. Nema ef Kristín skiptir líka. Þá verða þær tvær.

Annars gerðist sá víðfrægi atburður í leikfimi í síðustu viku, að ég og Kristín skullum saman. Hún fékk nettar blóðnasir og var send uppá slysó, á meðan ég sat eftir með skurð í kinninni eftir tennurnar hennar. Ég varð smeyk um að fá glóðurauga, eða eitthvað því verra, því árshátíðin er eftir viku. Sem betur fer er þetta samt allt gróið, enda er ég með góðan gróanda eins og leikfimiskennarinn sagði. Ég hringdi mig nú samt inn veika næstu tvo daga í skólanum og skilaði inn læknisvottorði, enda var ég með dúndrandi hausverk eftir höggið.

Ég var uppi á Akranesi um helgina. Svaf og borðaði mömmumat. Svo var Ásgerður á landinu þannig ég, Ásgerður, Freyja, Lára og Aníta hittumst og höfðum það kósí. Við gátum spjallað saman um allt sem var búið að gerast síðan síðast, sem var í júlí. Það var æðislegt. Stundum sögðu stelpurnar reyndar við mig að þær gætu ekki tekið mig alvarlega með þennann plástur í andlitinu, en hvað getur maður gert ...

Ég er samt frekar hamingjusöm í augnablikinu með mína háu stærðfræðieinkunn og fyrir það að hafa loksins haft kjarkinn í það að skipta um braut. Sem verður reyndar pínu vesen þar sem ég er bekkjarráðsmaður, en ....

Í dag þarf ég semsagt ekki að byrja að læra undir eðlis- og efnafræði prófin í næstu viku. Ég get farið á herranæturnámskeiðið, keypt í matinn og horft á sjónvarpið í kvöld, því góðir hálsar, ég á mér loksins líf.

,, Þú ert ömurlegur spegill.'' - Sagði Freyja við mig um helgina ...

5 comments:

Anonymous said...

hahaha hún freyja

Anonymous said...

BAHHH JÓHANNA!!
ertu þá kannski ekki lengur bekkjarráðsmaður??!!??!

NEEEIII....

en samt gott hjá þér að skipta um braut:P

Anonymous said...

ji hvað ég öfunda þig jóhanna að vera komin með líf!!!þú veist það ekki!!
þetta er frekar ömurlegt að vera alltaf að vera að drukkna í erfiðri efnafræði og stærðfræði og eðlisfræði sem er meira líkt kínversku og spurja sig siðan að þvi hvort þetta sé þess virði og hvort maður þurfi á þessu að halda!
jah ég öfunda þig frekar mikið:)

Jóhanna said...

Við erum nú samt alveg í sömu eðlisfræði og efnafræði núna Hulda mín :D hehehe

Og Hilla, ég bara einfaldlega veit ekki ... =/

Anonymous said...

ókei þá hefuru ekki eignast neitt líf!;)