Já góðir hálsar. Ég er hálfnuð.
Efnafræði, líffræði, þýska og enska búin.
Þýskan var hræðileg. Prófið var allt allt allt of langt og þungt. Það náði enginn að klára það. Djöfull verður vælt eftir áramót. Sérstaklega þar sem krakkarnir í spænsku og frönsku fengu tveimur blaðsíðum styttra próf. Helvítis þýskukennarar ...
Íslenska, stærðfræði, eðlisfræði og lífræn efnafræði eftir. Íslenskan á morgun og ég er ekki byrjuð að læra. Ég er samt búin með Njálu og er með fínar glósur úr rest þannig ég er ekkert fallin ...
Ég eldaði mér kvöldmat áðan. Beikon, egg og ristað brauð. Ég er mjög stolt af sjálfri mér. Er ein heima núna í prófunum. Hefur sína kosti og galla. Ég er smá einmana, en það er gott að fá algjöran frið.
Fer uppí bústað með Perlu á morgun. Ætlum að læra þar stærðfræði alla helgina eins og síðast. Það er æðislegt.
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1307455
Mæli með þessari frétt.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Gangi þér vel í prófunum :D
Ég er búin að þriðjudaginn og þá tekur danaveldið við til 17.des :D Eftir það mun ég hitta ykkur iste krúttin mín
Ég gerði þau stórfenglegu mistök að vera haugadrukkin í gær... =þynnka í dag =engin eðlisfræðilærdómur ..
Hmmm
Love ELna
Post a Comment