Já góðir hálsar. Prófatörnin er hafin. Eitt búið, sjö eftir.
Efnafræðin var ekkert létt. Samt ekkert fall. Enginn skilaði inn prófinu fyrren bjallan hringdi.
Er búin að vera mjög upptekin í dag. Hef ekkert komist í að læra og það er að koma kvöldmatartími.
Líffræðin verður bara tekin í kvöld. Ójá.
Ég er víst í tossabekknum í árgangnum. Allavega að sögn vissra prestafkvæma.
Málið er að ég hef staðið frammi fyrir miklu vandamáli síðustu tvær annir. Ég er á náttúrufræðibraut, samt hata ég raungreinar. Hvað gera bændur þá? Úrræðin í MR eru alls ekki mörg. Þau eru:
1. Að fara á málabraut.
2. Að fara á eðlisfræðibraut 2.
3. Að fara á viðskipta- og hagfræðibraut.
4. Að skipta um skóla og fara í gegn um allt vesenið sem fylgir því.
Þá skulum við meta kostina. Ég hef prófað málabraut. Fannst það ekki nógu krefjandi. Þar að auki þyrfti ég að fara niður um ár til að læra upp alla latínuna og verða ári á eftir í skóla. Ekki séns.
Ég er búin að prófa eðlisfræðibraut 2. Gallinn var sá að eðlisfræði er raungrein og því miður uppistaðan í náminu.
Ég er einstaklega hrifin af kosti númer þrjú. Gallinn er sá að þessi braut er ekki kennd í MR. Bara málabraut og náttúrufræðibraut.
Kostur númer fjögur. Hversu oft ég hef íhugað þennan kost er ekki hægt að henda reiður á. Niðurstaðan hefur samt ætíð verið sú að MR er bestur og eftir að hafa stundað nám þar er enginn annar skóli samboðin þeim erfiðleikastuðli sem þar er við lýði.
Þar af leiðandi er ég í "tossabekknum".
Ég hugsaði nefnilega með sjálfri mér að lífið væri ekki þess virði að pína sig áfram í einhverju sem þér finnst leiðinlegt. Þessvegna læt ég pína mig áfram í því sem mér finnst leiðinlegt, bara í því minnsta mögulega magni sem náttúrufræðibrautir í MR bjóða upp á.
Ég kýs að lifa á fornri frægð og varpa spurningunni fram um það hver dúxaði í grunnskóla hérna fyrir nokkrum árum síðan ...
Svarið við þeirri spurningu gefur mér alltaf smá hughreystingu. Ég er ekki tossi.
,, Líf sérhverrar manneskju er vegur heim til hennar sjálfrar. '' - Hermann Hesse ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
þá varpa ég fram lykilsetningu í bók skáldsins Olaf Berkovic
"lífið er svo miklu meira en skóli"...Alpacanio Mhuammed sjötti
Ég lifi ekki fyrir annað en skóla. Ég vildi að það væri skóli 24/7 alla daga ársins, allt lífið!
Vá hvað ég veit samt ekkert hver þetta er ... :Þ
Ég skilaði alveg heilum 3 mínútum áður en hringdi get ég sagt þér...
Ég er heldur ekki tossi.. og held að fæstar stelpurnar í bekknum séu tossar.. kannski eitthvað annað með strákana.. veit ekki.. Spurning um áhugasvið .. ekki getu :D :D
Já, ég skil þig með þetta að lifa á fornri frægð... bjargar manni algerlega þegar maður er við það að gefast upp :p
Berglind, ég tel þig ekki með. Þú ert ekki mennsk .. þú þarna litla lærdómsdýr!
málabraut ekki nógu krefjandi.
djöfull væri ég til í að sjá eitthvað af ykkur nátt/eðl-brautar fólkinu í latínutíma á fornmálabraut...
það væri nú gaman, ha?
þú ert samt ekki tossi. það er fólkið á nýmála 2.
Oi, achei seu blog pelo google está bem interessante gostei desse post. Gostaria de falar sobre o CresceNet. O CresceNet é um provedor de internet discada que remunera seus usuários pelo tempo conectado. Exatamente isso que você leu, estão pagando para você conectar. O provedor paga 20 centavos por hora de conexão discada com ligação local para mais de 2100 cidades do Brasil. O CresceNet tem um acelerador de conexão, que deixa sua conexão até 10 vezes mais rápida. Quem utiliza banda larga pode lucrar também, basta se cadastrar no CresceNet e quando for dormir conectar por discada, é possível pagar a ADSL só com o dinheiro da discada. Nos horários de minuto único o gasto com telefone é mínimo e a remuneração do CresceNet generosa. Se você quiser linkar o Cresce.Net(www.provedorcrescenet.com) no seu blog eu ficaria agradecido, até mais e sucesso. If is possible add the CresceNet(www.provedorcrescenet.com) in your blogroll, I thank. Good bye friend.
Post a Comment