Já góðir hálsar. Ég er hætt að blogga.
Ástæðan fyrir því er einföld. Tímaleysi.
Vetrarfríið var nýtt í árshátíð, heimsókn á Akranes og tvítugsafmæli. Rosa gaman.
Í gær var ég í skólanum til sjö. Í dag til tíu. Ég er soldið uppgefin.
Frumsýning Herranætur á föstudaginn. Þá er það allt loksins búið. Skráning í útskriftaferðina var í síðustu viku. Þá er það loksins búið. MR-fötin komu í dag. Þá er það loksins ... næstum búið.
Allt búið að vera æðislega skemmtilegt. En ég er orðin svolítið langþreytt og vantar gott frí.
Ég ætla nú samt að bjóða mig fram í framtíðarstjórn. Langar það soldið mikið ...
,, Ég skal bara redda þessu.'' - Virðist vera frasinn minn þessa dagana ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment