04/02/2008

Eldur, eldur!

Já góðir hálsar.

Fyrirgefið bloggleysið. Þetta er alls ekki líkt mér.

Ástæðan fyrir því er bara sú að það hefur verið mjög mikið að gera í sambandi við útskriftaferðina, MR fötin og markaðsstörfin fyrir Herranótt. Og að vinna og læra heima.

Ég var svo uppgefin í gærkvöldi að ég hefði getað kastað mér á gólfið og grátið mig til svefns, bara vegna einskærrar ofþreytu. Svona er það að vera að jafna sig á einkirningasótt börnin góð. Maður er alltaf þreyttur.

Árshátíðin er eftir 10 daga. Hlakka sjúkt til. Búin að redda kjól og svo er bara spa með bekkjarsystrum mínum um morguninn. Hver er ekki til í smá dekur.

Bróðir minn er fluttur til Danmerkur. Þá á ég einn bróður í Svíþjóð og annan í Danaveldinu. Dreifingu fjölskyldunnar um norðurlöndin gæti haldið áfram á komandi árum. Hver veit.

Það er slökkvuliðsbíll fyrir utan hjá mér. Og sjúkrabíll og löggubílar. Við erum búnar að liggja á rúðunum að reyna að átta okkur á því hvað sé í gangi. Svo stendur á mbl.is að það sé bara búið að kvikna í hérna á Hverfisgötunni. Það er bara ekkert minna.

Og Glitnir rændur í dag með öxi. Fyrir framan skólann minn. Rosaleg staðsetning er þetta á manni. Ég verð bara að fara að bolta niður ruslatunnurnar hjá mér ..

Fékk borgaðan pening í dag frá LÍN. Leiðrétting frá akstursstyrk yfir í jöfnunarstyrk fyrir síðustu önn. Svo fékk ég líka helvíti vel útborgað fyrir Eymundsson. Lífið gæti ekki verið betra þessa dagana.

Nema kannski ef ég ætti úr sem stoppaði tímann. Mig hefur alltaf langað í svoleiðis.

Einn mánuður í afmælið mitt. Þar hafið þið eina tillögu um gjöf ...

,, Vildi bara þakka þér fyrir daginn og vikuna, þú ert búin að vera ofboðslega dugleg og ég kann að meta það hvað þú ert mikill snillingur. '' - Sagði Steinar, gjaldkeri Herranætur við mig á dögunum. Ég varð glöð ...

No comments: