Já góðir hálsar. Ég var að átta mig á einu í dag. Ég er með einsdæmum óákveðin manneskja.
Ég hef 3 góð dæmi.
Skólinn. Á mínum menntaskólaferli hef ég stundað nám á 5 brautum. Geri aðrir getur. Ég væri hinn fullkomni nemendaráðgjafi, og hyggst ég sækja um þá stöðu fyrir næsta skólaár. Ég hlýt að vera eini nemandinn í skólanum í augnablikinu sem hefur eins víðtæka reynslu og raun ber vitni, bæði í námi og kennurum, en ég hef haft þá nokkra. Í 3.bekk var ég á málabraut og náttúrufræðibraut. Í 4.bekk var ég á náttúrufræði I og núna í 5.bekk prófaði ég bæði eðlisfræðibraut II og náttúrufræðibraut II. Næsta haust mun ég svo skipta um bekk og verður það minn sjötti ...
Hárið á mér. Fólk sem ég hitti ekki dags daglega hefur orð á því hversu gaman það er alltaf að sjá mig. Ég er öðruvísi í hvert skipti. Á þessum tæpu 3 árum sem ég hef verið í menntaskóla hefur árið á mér verið sítt, stutt, krullað, slétt, liðað, ljóst, brúnt, skollitað og svart.
Vinnan. Árið 2007 sótti ég vinnu á 5 mismunandi vinnustöðum. Aldrei var ég rekin. Ég bara hætti. Það voru Harðarbakarí, Ölver, Vero Moda, Blómaval/Húsasmiðjan og núna síðast Eymundsson, þar sem ég starfa ennþá.
Ég er víst alltaf eitthvað að reyna að finna mig. Langar reyndar rosalega að skipta um braut. En það sem mig langar að læra er ekki í boði í hinum annars ágæta skóla sem ég sæki.
Árshátíðin er á fimmtudaginn. Fyrirhugað var að stelpurnar í mínum bekk færu í spa saman fyrr um daginn. En nei. Bekkurinn hefur ákveðið að fara í Laser tag í staðinn. Ég fer ekki. Ég er samt voðalega lítið spennt fyrir þessu öllu saman. Ég hef ekki fundið útúr því hvort það sé þreytan, aldurinn eða almennur óáhugi fyrir djammi þessa stundina. Bekkurinn minn ætlar líka að borða lasanga saman um kvöldið. Ég borða ekki lasanga. Ég er sjúklega vanþakklát. Ég veit.
Á þriðjudaginn er ég boðuð á foreldrafund sökum embættis míns sem ritari 5.bekkjarráðs. Ekki á ég að mæta á fund með mínum eigin foreldrum, þvert á móti. Foreldraráð MR boðaði til þessa fundar, og mæti ég einungis sökum forvitni minnar. Verður talað um unglingadrykkju eða skólabúninga? Ég get svo sannarlega ekki beðið. Ég er að telja niður dagana.
Afmælið mitt 5.mars. Kosningar í skólanum 7.mars. Ætti maður ekki að bjóða sig fram í eitthvað sniðugt, eins og bókasafnsnefnd?
Ég eyddi helginni í að búa til risastórt excel skjal og skrá inn kennitölur, heimilisföng og símanúmer 202 einstaklinga fyrir útskriftaferðina. Og afgreiða bækur. Líf mitt er spennandi.
,, Jóhanna, þú ert svona manneskja sem gæti einn daginn bara sprungið.'' - Sagði Gunnar bekkjarbróðir minn við mig um daginn, en almennt upplifir bekkurinn minn mig sem kaldan og reiðan einstakling. Af hverju veit ég ekki ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
HEY! Mér finnst þú ekki reið... kannski soldið mjög upptekin en mikill fengur fyrir bekkinn:)
Þakka þér fyrir ... hver sem þú ert. =)
Þú ert ekkert köld né reið. En mér finnst samt að þú eigir að koma í Laser-tag með okkur. það verður gaman maður. Og svo kemuru auðvitað í matinn, hlusta ekki á neitt annað rugl :p Það verður kannski pasta líka og þú getur étið það.. aaaannars pöntum við bara pizzu fyrir þig
Hehe strákarnir eru alltaf að segja það!
Ég skal borga pítsu fyrir mig. Það er klárlega besti árshátíðarmaturinn :D
Post a Comment