Já góðir hálsar, í dag átti ég afmæli. Ég varð 19 ára.
Dagurinn byrjaði æðislega. Sambýlisfólk mitt vakti mig klukkan hálf átta um morguninn. Þá gengu þau Svala, Kristjana og Lalli inn í herbergi til mín haldandi á þessari bráðfallegu afmælisköku með 19 kertum á. Logandi að sjálfsögðu. Þau sungu afmælissönginn fyrir mig með sínum undurfagra samhljóm, og ég get svo svarið það, ég hef aldrei vaknað svona hamingjusöm.
Þegar fram var komið með stírurnar í augunum og ruglað hár beið mín þessi líka dýrindis morgunverður. Ristað brauð með osti og sultu ásamt rjúkandi heitu kakói. Ekki amalegt það skal ég segja ykkur. Þegar ég mæti í skólann fæ ég engar hamingjuóskir, en slengt er framan í mig stærðfræðiprófi uppá 3,3. Ég held ennþá í mínar hamingjusömu hugsanir og tek Pollýönnu á þetta. Það gengur bara betur næst.
Í hádegishlénu fer ég á Sólon með Perlu, Kristínu, Siggu og Ívari. Það var voðalega kósí stund, en samt stutt, enda lengd hádegishlésins ekki nema 40 mínútur.
Skóladagurinn er ekki sá skemmtilegasti, en hann er það samt útaf því að ég átti afmæli. Bekkurinn tók við sér að lokum og söng fyrir mig afmælissönginn. Það er alltaf jafn kjánalegt að standa eins og þvara úti á miðju gólfi og láta syngja fyrir sig. Brrr, kjánahrollur. Samt smá gaman.
Eftir skóla dreif ég mig í Kringluna. Ætlaði að reyna að finna eitthvað fallegt handa mér í afmælisgjöf. Fann ein sólgleraugu. Ömurleg verslunarferð. Enda leiðinlegt að versla einn.
Fór svo að vinna klukkan fimm. Það er ekki búið að vera neitt að gera í kvöld. Ég er bara búin að vera hanga eitthvað. Aðstoða einstaka viðskiptavin og lesa þýsku. Það er ekki gaman að þurfa að vinna á afmælisdaginn sinn, en einhvernveginn verður maður víst að lifa. Hvað er ég að kvarta? Vinnan mín gæti ekki verið betri.
Ég ætla að bjóða stelpunum í smá stelpu-afmælisboð á laugardagskvöldið. Þær virðast samt vera að beila á mér hver af annarri. Fjáraflanir, vinna, handboltapartý og aðgerðir eru víst mikilvægari en ég. Ég er samt ekkert súr. Þegar maður býður mörgum er alveg vitað að einhverjir komast ekki. Ég fékk þó allavega afmæliskveðjur, og það nóg af þeim.
Og nei, ég veit ekkert hvað mig langar í í afmælisgjöf. Mjúkur pakki er samt alltaf velkominn. Eða eðlisfræði-efnafræði-stærðfræðikennsla ...
Fékk pening frá mömmu og pabba í afmælisgjöf. Veit ekki hvort ég eigi að kaupa mér ljósmyndasett eða borga útskriftaferðina með honum. Ég er á báðum áttum.
Ég vil þakka öllum fyrir sms-in, símtölin, myspace og facebook kommentin, hamingjuóskirnar og faðmlögin í dag. Þið hafið gert daginn mjög ánægjulegan.
,, Þú ert að verða sú manneskja sem þig hefur alltaf langað að vera. Þú þarft enn að uppræta gömul mynstur - og þar situr ein hugmynd sem fastast.'' - Sagði stjörnuspáin mín í dag, og átti einstaklega vel við ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hello. This post is likeable, and your blog is very interesting, congratulations :-). I will add in my blogroll =). If possible gives a last there on my blog, it is about the MP3 e MP4, I hope you enjoy. The address is http://mp3-mp4-brasil.blogspot.com. A hug.
Post a Comment