02/03/2008

Akranesdvöl.

Já góðir hálsar. Ég sökka opinberlega. Það eru að verða 2 vikur síðan ég bloggaði síðast.

Herranótt er búin.

Ég ákvað að fara ekki í framboð. Ég varð að velja á milli þess að borga fyrir prentun á plakötum og bæklingum eða borga húsaleigu, rafmagn og hita. Valið var augljóst.

Ég fór á árshátíð NFFA á fimmtudaginn. Þar sáu Freyja og Lára og Anna um árshátíðina og þetta toppaði algjörlega árshátíðina í MR. Báðar meiraðsegja til samans. Maturinn var miklu betri, skemmtiatriðin aksjúallí fyndin og ballið frábært. Ekki skemmdi það svo að ég tók myndir af liðinu. Allir svo sætir.

Ég var á Skaganum alla helgina. Nema ég fór með Láru og Magnúsi í afmæli hjá Huldu á laugardagskvöldið. Mikið af fólki, mikið gaman, mikið fjör. Hið besta mál. Endaði svo heima hjá mér í rúminu mínu með Huldu og Láru. Þvílíkur fengur.

Ég svaf alla helgina. Hvíldi mig. Þurfti svolítið svona á því að halda. Opnaði ekki skólabækurnar. Stærðfræðipróf á morgun. Spurning um að sökka svolítið í því barasta ...

Fór á Algjör draumur áðan með Láru. Hið ágætasta leikrit. Tónlistin bætti upp fyrir það hve söguþráðurinn var á köflum gallaður og langdreginn.

Fannst MR leikritið betra. Þar fékk maður leikskrá, tónlistin var meistaraverk og leikurinn frábær.

Svo er það bara strætó heim í fyrramálið ... Mitt uppáhald.

No comments: