26/03/2008

Óljóst.

Já góðir hálsar. Netið hefur legið niðri hjá mér um skeið sökum viðgerðar á tölvugarminum mínum. Það er reyndar ekki enn komið í lag, en ég redda mér.

Skólinn byrjaði aftur í dag eftir páskafríið mikla. Því var eytt í Akranes, Hvammstanga og vinnu. Ljúfa lífið.

Það styttist í vorpróf ... og sumarið. Ég er ekki komin með sumarvinnu, og það nagar mig að innan. Gjörsamlega.

Ég fékk reyndar vinnutilboð í dag. En sú vinna er á Akranesi. Samt mjög skemmtileg og lífleg vinna. Leikjanámskeið. Svo ræddi ég við þýskukennarann minn í dag. Hún var yfirmaður í vinnuskóla Reykjavíkur síðasta sumar. Hún sagði að það væri sjálfsagt að leggja inn gott orð fyrir mig, eða tala bara við stjórann sjálfan. Þannig að ég þyrfti ekkert að leggja inn umsókn.

Stundum er gott að vera góður í þýsku.

En ég veit það ekki. Veit ekki hvort ég nenni að vinna á Akranesi. Veit ekki hvort ég nenni að vinna í vinnuskólanum. Ég er mjög óviss núna þessa dagana.

Hlakka til á laugardaginn. Þá er árshátíð Eymundsson. Það verður fróðlegt kvöld.

Fékk 8 fyrir íslenskuritgerðina mína. Mjög sátt þessa dagana. Lífið er eintóm hamingja. Svona eiginlega.

Ég er blönk.

No comments: