Ég er ekki ennþá komin með netið. Það sökkar.
Ástæðan fyrir því er Alex, en hann býr í íbúðinni uppi. Við deilum sama router og hann neitar að láta mig fá lykilorðið. Helvítis mella.
Ojæja. Lífið er búið að vera frekar gott þessa dagana. Ég fór á árshátíð Eymundsson síðustu helgi. Þar vann ég í happadrætti. Ég vann matarkörfu, út að borða fyrir 4, nokia síma, army hníf, heimilissíma, Erró bókina og poka stútfullan af nammi.
Svo var grímuball Framtíðarinnar í gærkvöldi. Það var sjúklega gaman. Við stelpurnar gerðum okkur til heima hjá mér, þ.e.a.s. ég, Hulda, Sigga, Perla, Kristín og Ívar. Við pöntuðum okkur pítsu, skelltum okkur í búninga og skemmtum okkur vel. Fórum svo í fyrirpartý til Ástríðar, sem lék sjóræningja. Ég var hjúkka, Hulda lögga, Perla candy cain striper, Sigga rauðhetta, Kristín FBI agent, Hilla desperate housewife og Ívar var ... með kúluhatt.
Alltaf skemmtilegt að sjá fólk leggja mikinn metnað í búningana.
Fyrirpartýið var fínt, og ballið líka. Reyndar var frekar gaman á ballinu, þrátt fyrir að XXX Rottweiler væru að spila. Ég fýla þá engan veginn. Stórgott ball.
Það styttist óðum í vorprófin. Næsta vika verður ógeð, en svo ætti að fara að hægjast um. Á mánudaginn er stóra þýskuprófið, þriðjudaginn líffræðipróf, miðvikudaginn stærðfræðipróf, fimmtudaginn efnafræðipróf og föstudaginn eðlisfræðipróf. Úff.
Ég get ekki fengið fulla vinnu í Eymundsson í sumar. Ég er samt komin með vinnu, ef ég vil. Vandamálið er bara að sú vinna er á Akranesi. Samt sem áður geðveikt skemmtileg vinna. Leikjanámskeið.
Hvað á ég að gera? Ég nenni eiginlega ekki að taka strætó uppá Akranes á hverjum degi og mig langar að búa í Reykjavík í sumar. Það er alveg spurning um að labba bara á milli fyrirtækja hérna í miðbænum í næstu viku og sækja um. En mig langar samt svo mikið að vinna á leikjanámskeiðinu.
Erfitt líf.
Mörðurinn hann bróðir minn datt svo sannarlega í lukkupottinn í Danaveldinu í gær. Hann fékk einhverja sjúklega góða vinnu hjá tölvufyrirtæki. Af hverju get ég ekki verið svona heppin líka ...
Og já. Ég er að selja klósettpappír til styrktar mér í útskriftarferð til Rhódos núna ef einhver hefur áhuga.
Mig vantar kennslu í efnafræði, eðlisfræði og lífrænni efnafræði á næstkomandi dögum. Get boðið þýskukennslu eða íslenskukennslu í staðinn. Skólalífið er doldið erfitt þessa dagana. Verð að fara að flytja inn á Þjóðarbókhlöðuna bráðum.
,, Já, hann var rekinn út af ballinu fyrir að pissa á vegginn inná klósetti. Svo var hann geðveikt hissa á því að honum hefði verið hent út. Hann var bara að pissa á veginn.'' - Var eitt af slúðrinu af grímuballinu sem maður heyrði í hádeginu ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Sjúklega góða vinnu + flug til Svíþjóðar + íbúð + uppihald í heilan mánuð + íslensk stelpa innifalin þennan heila mánuð. ;-)
Hjúkka aftur?
Að sjálfsögðu Sveinn ;)
Og Gunnar. Þú átt ekki neitt í þessari íslensku stelpu =)
Post a Comment