23/04/2008

Mánuður í frelsi.

Já góðir hálsar. Ég er eiginlega í sjokki.

Það kom skýrt fram í dag hversu gjörsamlega grunlaus ég er um umhverfið í kring um mig. Ég vil kenna sjónvarpsleysinu á heimili mínu um það. Það er að segja skort á ríkissjónvarpinu. Ég ákvað að rölta fram í sjónvarpsholið hjá tengdarforeldrunum áðan þegar ég sá að allir meðlimir heimilisins höfðu safnast þar saman og hlustuðu með mikilli athygli á fréttarþulinn. Hvað var í fréttunum?. Jú, mótmælin miklu.

Ég er í sjokki. Ég studdi vörubílstjórana í öllu og unglingana. Lögreglan á Íslandi má skammast sín. Og Geir H. Haarde .. eigum við að ræða það eitthvað eða? Ég var ekki á sama máli og fólkið hér frammi sem sagði að þetta væru bara hálfvitar og að lögreglan hefði átt að vera löngu búin að stoppa þetta.

Fyrir mér eru vörubílstjórarnir fulltrúar allra stétta á Íslandi sem fá að kenna á þessari gengislækkun. Guð hjálpi íslenskum heimilum þegar reikningar aprílmánaðar koma inn um póstlúguna. Stjórnmálafólk neytar að gera eitthvað í málinu. Finnst bara svo frábært að það þori einhver að segja skoðun sína.

En annars er ég komin með vinnu í sumar. Leikjanámskeið og flokkstjóri í vinnuskóla Akraness. Ætla að búa bæði í Reykjavík og á Akranesi í sumar. Ég, Sigga og Perla ætlum að leigja herbergið mitt allar saman í sumar. Ég fæ sumarfrí hjá Eymundsson Austurstræti og byrja aftur að vinna þar í ágúst. Lífið er allt að smella saman.

Hlakka til Danmerkur og Rhódos í sumar. Og að vera úti allan daginn í sólinni og fá tan. Og fara í sund á Akranesi og geta farið í útilegur og .... vá.

Það er minna en mánuður í að ég sé búin í skólanum. Ég klára 21.maí. Þá verður sko fagnað. Glósun í íslensku er lokið. Og þýsku líka semí.Þá eru bara 6 greinar eftir. Söss, það reddast.

Var í munnlegu stúdentsprófi í þýsku sem gildir 30% af stúdentseinkunn og kennarinn sagði að okkur Giselu hefði gengið mjög mjög vel. Ég er ekki fallin í þýsku, svo mikið er víst. Ég brosi bara út af eyrum.

Fall kemur ekki til greina.

,, Always remember that the future comes one day at a time." - Dean Acheson ...

1 comment:

Anonymous said...

Fulltrúar allra stétta á Íslandi?? Nei hættu nú alveg. Þessir kallar eru bara að 'berjast' fyrir eigin sérhagsmunum.