01/05/2008

Skúffukaka og mjólk.

Já góðir hálsar. Á morgun er fyrsta prófið og ég get ekki neitað því að stressið er farið að segja til sín.

Ég er reyndar búin með munnlega stúdentsprófið mitt í þýsku, og það gekk vonum framar. Með öllu og öllu tek ég 11 próf og bara 10 eftir ...

Líffræðin byrjar á morgun. Var að vinna í gær. Ætlaði að grípa í bækurnar í vinnunni, enda ekki mikill tími til stefnu. En nei. Var þá ekki bara sjúklega mikið að gera og ég var á haus alla vaktina. Það er alltaf indælt. Vinn svo föstudag, laugardag og sunnudag. Fer svo í stúdentspróf í ensku og lífrænni efnafræði í vikunni eftir það. Ég á svolítið bágt að vera að vinna í prófunum, en svona er lífið. Viva das Leben ..

Í gær fór ég í mína síðustu kennslustund í ensku, efnafræði og eðlisfræði. Síðasti þýskitíminn var samt ánægjulegastur. Kristjana, kennarinn okkar, bakaði handa okkur köku og bar hana fram með nýmjólk. Hún hélt svo litla ræðu þess efnis að hún myndi aldrei gleyma okkur. Hugljúft. Síðan helltu flestir mjólkinni sinni niður.

Námseinkunnir afhentar í gær. Ég er með 8 í íslensku og ensku og 9 í líffræði og íþróttum. Lélegasta einkunnin er svo í lífrænni efnafræði, skiljanlega. Meðaleinkunn er 7,2 og ég una bara ágætlega við mitt miðað við aðstæður. Þetta ár er búið að vera mjög sérstakt. Hlakka til að sjá raunmætingu mína. Veikindi eru ekki af hinu góða.

Þetta er búið að vera gott ár fyrir MR. Við unnum Gettu betur, Morfís, MR-ví daginn, þýskuþrautina, stærðfræðikeppnina, eðlisfræðikeppnina, efnafræðikeppnina, frönskuþrautina og bara ... jahá.

Þetta ár er búið að líða glæpsamlega hratt. Ég trúi því varla að eftir sumarið verð ég orðin útskriftarnemi í tóga. Ég hef bara eitt að segja um það. Sjitt.

Sumarið verður samt geðveikt. Ég finn það á mér. Verð að vinna eitthvað í vinnuskólanum en aðallega á leikjanámskeiðinu. Ég mun búa bæði á Akranesi og í Reykjavík og mun fara 2svar til útlanda og fara á írska daga, í útilegur og ég veit ekki hvað og hvað.

Fórum út að borða í hádegishlénu í gær við Perla, Kristín, Hilla og Hulda til að fagna síðasta skóladeginum. Það var indælt.

Annars hef ég ákveðið að ég mun dimmitera með Láru um jólin, bara af því ég má það. Fara svo í útskriftarferð númer tvö með FVA og koma tönuð í skólann eftir jólafrí.

Þetta ár hljómar vel.

Þarf bara að klára 10 mökk erfið próf, síðan getur lífið hafist á ný.

,, Live as if you were to die tomorrow. Learn as if you were to live forever." - Gandhi ...

3 comments:

Anonymous said...

þið unnuð ekki forritunarkeppnina!

Anonymous said...

Óþarfi að vera abbó Sveinn. :-)

Anonymous said...

Satt, satt... Sérstaklega þar sem ég er hvorki í framhaldsskóla né veit nokkurn skapaðan hlut um forritun