Já góðir hálsar. Írskum dögum lokið.
Eftir vinnu á föstudeginum var skellt sér í götugrill eftir að hafa keypt miða á Lopapeysuballið. Jörundarholt 1-32 skellti saman kjöti á grillið. Heljarinnar stemning. Ég beilaði reyndar snemma og skellti mér til Ylfu, í grill hjá Jörundarholti 220-232. Svo kom Magnús og við náðum í Freyju. Við fórum þá til Láru. Þar fjölgaði óðum, en Styrmir, Christian, Sævar og Hulda bættumst við. Við röltum á útitónleikana, sýndum okkur og sáum aðra. Ég hitti þjónustufulltrúann minn frá Landsbankanum Austurstræti. Voru það sko endurfundir í lagi. Einnig fékk ég mér pítsu frá Dominos og labbaði með Ylfu, Magnúsi og Huldu heim.
Laugardagurinn var osom. Grillpartý heima hjá Ylfu fyrir ballið. Fólkið, maturinn, tónlistin, samræðurnar, drag-showið hjá Davíð og fimleikahæfileikar Sævars ... Nautn. Það kom skýrt fram þetta kvöld að Benni er ekta borgardrengur. Hann mætir hér til að fara á útiball í ljósum frakka og lakkskóm. Stór mistök. Ég lánaði honum lopapeysu af stóra bróður, enda kom í ljós þegar á ballið var komið að það var mjög góð hugmynd. Drullan, Sálin hans Jóns míns, útikamrar og sódóma. Fullkomnun.
Sunnudagurinn var tekinn rólegur. Við Benni fórum til Reykjavíkur eftir að ég fékk ferðanesti. Með öðrum orðum skútufranskar. Algjör nauðsyn. Þar var skellt sér í Kringluna og gert kjarakaup á útsölu í skóbúð nokkurri.
Helgarnar gerast varla betri.
Ég heyrði eftirfarandi samtal í vinnunni. Einhverra hluta vegna fannst mér það einkar spaugilegt. Og krúttlegt.
Ég: Krakkar, farið á klósettið núna ef þið þurfið að pissa.
Barn 1: Ég þarf að pissa.
Barn 2: Ég þarf ekki að pissa, ég þarf að kúka.
Barn 1: Kanntu að skeina þér?
Barn 2: Jáh, það er sko geggjað létt.
Barn 1: Já ég líka ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Heyrðu þér er fyrirgefið;)
sérstaklega þegar ég fæ gjöf... heheheh
en já gott að þið hafið skemmt ykkur á írskum! ég hefði joinað hefði ég ekki verið á mest AWESOME útihátið sem fundin hefur verið upp:D
Post a Comment