Já góðir hálsar. Vetrarfríinu lýkur í kvöld.
Ég hef eytt mestöllum tímanum í hvíld og svefn, en svo hefur maður nú líka verið duglegur að læra, enda ekki annað hægt.
Fimmtudagurinn fór í svefn og lærdóm. Ég hef örugglega sjaldan lært svona mikið á einum degi. Metnaður.
Föstudagurinn fór í svefn og sturtuferð út í bæ. Ég horfði svo á rúv í 5 klukkutíma.
Laugardagurinn var rosalegur. Mamma vakti mig klukkan tíu um morguninn og sagðist vera fyrir utan. Frábær vekjaraklukka sú kona. Við byrjuðum á því að fara í kolaportið að reyna að finna eitthvað af þeim bókum sem brunnu. Núna á ég svona 12 bækur. Ég fann bækur eins og Sossu, Röndótta spóa og Grillaða banana. Bækur sem fást ekki lengur í bókabúðum. Mikil gleði.
Svo fórum við í Ikea og keyptum náttborð, lampa, þvottagrind, myndir, diska og kerti. Já, ég keypti mér kerti. Veit ekki hvenær ég á eftir að kveikja á því, en vonandi finnst hugrekki í það bráðum. Svo fengum við okkur líka að borða í Ikea. Sá matsölustaður stendur alltaf fyrir sínu.
Ég fór líka í stuttar heimsóknir til Kristjönu og Svölu. Langt síðan maður hefur hitt þær. Svolítið skrýtið að hitta þær ekki á hverjum degi lengur. Núna erum við orðnar venjulegar vinkonur, ekki sambýlingar.
Já svo fórum við líka til Keflavíkur. Heimsóttum leiðið hans pabba og kíktum svo á Smáratúnið til Sigrúnar og Stulla. Það er alltaf gaman að heilsa uppá föðurættina.
Í dag hef ég eytt deginum í kósígallanum að taka til og þvo þvott. Kötturinn á heimilinu pissaði á rúmteppið mitt og púðana. Ekki vinsælt.
,, I could never love a human baby as much as I love this brush.'' - Blades of glory ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Leiðinlegt að heyra að íbúðin þín brann! Gott að allir sluppu heilir á húfi.
Ánægður með þig að fara í Kolaportið, ég fór einmitt líka að skoða bækurnar þar síðustu helgi. Þetta er besta bókabúð landsins, án nokkurs vafa. Besta verðið líka.
Post a Comment