31/12/2009

Árið á enda.

Jæja þá er þessu ömurlegasta ári lífs míns að ljúka. Ég get ekki lýst því hversu góð tilfinning það er. Þetta eru kaflaskil í lífi mínu og ég finn það á mér að árið sem er að koma verði það bestasta sem til er. Það á bara að vera það!

Ég er að hlusta á "Lífið er yndislegt" og er að hugsa til þess hversu lífið er yndislegt í augnablikinu. Ég er að elska þetta.

Það sem stendur uppúr á árinu er klárlega tvítugsafmælið mitt og Huldu, fiðluballið, útskriftin, Berlínarferð okkar systkinanna og þjóðhátíð. Þessi Austurríkisferð er svo að toppa það allt!

Hér eru allir að sprengja flugelda og ég er komin úr sturtu. Svo ég segi bara gleðilegt nýtt ár elsku kútarnir mínir. Sjáumst hress í sumar því þetta verður frábært sumar! Elska ykkur öll og langar að senda öllum stórt knús.

Gleðilegt nýtt ár.
Takk fyrir mig.

1 comment:

Anonymous said...

gleðilegt ár