03/01/2010

Kalt.

Já elsku fólk. Hér er orðið virkilega kalt. -20 stiga frost er alveg að bíta vel í. Úlpan mín góða dugar varla til.

Það er alveg slæmt hversu hægt sár gróa hérna útaf kuldanum. Ég er nefnilega alltaf að brenna mig eða skera mig í vinnunni. Ekki misskilja, ég sit ekki inná klósetti með rakvélablöðin og set hendina vísvitandi á helluna. Samstarfsmenn mínir eru orðnir vanir því að heyra öskur svona nokkrum sinnum á dag og þá vita þeir bara að ég var að meiða mig. Náði meirasegja að skera mig á vél sem ég var að þrífa. Hægri handleggurinn á mér er bara eitt sár. Og það grær ekki hratt hérna. Himnaríki.

Svo er maður komin með helvíti gott kvef, hálsbólgu og meððí. Eyrnabólgu líka, þótt að fólk segi að þetta sé bara lofthæðin sem sé að hafa svona áhrif á okkur. Erum náttúrulega að vinna í 2300 metra lofthæð. Sem er d-r-u-l-l-u-kúl.

Annars er allt gott að frétta héðan. Erum eiginlega öll í fríi á morgun, og það þýðir ekki nema eitt. BRETTI.

No comments: