Já elsku kútarnir mínir, þessir 11 dagar sem ég hef verið hér hafa verið svo fljótir að líða að ég trúi því varla. Bara 3 mánuðir og 20 dagar eftir, eða eitthvað þvíumlíkt.
Jii. Ég er ekki búin að blogga svo lengi að það er svo mörgu að segja frá að ég varla nenni því. En.
Ég var svolítið að bregðast of illa við þessum mat sem við fáum gefins. Ef við borðum ekki matinn sem er í hádeginu megum við fá spaghetti eða góðar samlokur eða eitthvað í staðinn, og svo er alltaf eitthvað af þessu sem maður borðar. Eða allavega smakkar, svo maturinn er alveg að reddast. Maður er allavega hættur að vera sísvangur. Mér tókst meirasegja að útskýra fyrir Söndru á þýsku að ég væri ekki beint grænmetisæta, en mér þætti kjöt og fiskur bara einfaldlega vont. Það skildist furðu vel. Nicht gemüse.
Ég er orðin svo sleip í þýskunni að það ætti að vera ólöglegt. Eða svona. Ég reyni að tala eins mikið og ég get á þýsku, en þjóðverjarnir vilja ólmir læra ensku, þannig við hjálpumst bara að við þetta. Ég þarf samt alveg smá stund til að hugsa setningarnar í huganum áður en ég segi þær, og svo er ég leiðrétt ef ég segi eitthvað vitlaust. Mjög gott fyrirkomulag!
En allavega. Fyrstu vinnudagarnir voru náttúrulega bara helvíti á jörðu og við vorum sjúklega svartsýnar ég og Sigga. En svona í alvöru, þá var það bara svona byrjenda-tungumála-nýtt-örðugleikar. Við unnum 8 daga í röð og fengum svo frí í gær og maður saknaði þess bara liggur við að mæta í vinnuna. Ekki misskilja mig, það var yndislegt að fá að sofa smá út og fara á bretti, en samt smá leiðinlegt að hitta ekki fólkið. Það er lúmskt skemmtilegt. Svo það er allt mjög gott að frétta úr vinnunni. Alles gut.
Á aðfangadag unnum við öll til 5 og fengum svo glühwein og heitar hnetur og allir óskuðu hvort öðru gleðilegra jóla. Svo fórum við íslendingarnir saman út að borða á Dominiques. Það var ekkert svaka fensí, en við höfðum ekki beint efni á neinu fínna. Svo þetta var bara kósí. Áttum langan kvöldmat og spjölluðum helling saman. Gengum svo hringinn og sögðum hvort öðru hvernig aðfangadagskvöldið hefði verið hjá okkur ef við hefðum verið á Íslandi. Sjúklega krúttlegt.
Svo hafa jólin bara farið í vinnu, kúr, djamm, félagsskap, almenn skemmtilegheit og the Grinch. Ekki beint eins jól og maður á að venjast, en það er líka bara allt í lagi að prufa stundum eitthvað annað.
Annars þá var ég í fríi í gær. Fór á bretti. Aðal mannskapurinn er mættur og það er allt troðið af fólki hérna. Ríku fólki. Það er allt klætt í sjúklega dýran fatnað og splæsir í hvað sem er. En allavega. Ég fór á bretti. Fór fyrstu ferðina niður, og það tók mig bara hálftíma! Miðað við að síðasta ferð tók okkur Siggu 2 og hálfan tíma, þá verð ég að segja að bæting um 2 klukkutíma sé bara nokkuð góð.
Á annarri ferðinni minni niður fannst mér ég vera orðin svo góð að ég þorði að fara hratt á brettinu. Sem að sjálfsögðu endaði með því að ég gat ekki lengur stöðvað mig og flaug framfyrir mig. Lenti harkalega á bringunni og smallaði hausnum í jörðina. Var að sjálfsögðu með hjálm, sem bjargaði öllu, enda hefði ég rotast hefði hans ekki notið við, þetta var það gott högg. Ég missti andann í góða stund og var lengi að jafna mig, greyið. Er svo búin að vera að drepast í hálsinum í allan dag, og gæti vel trúað að ég væri smá tognuð í honum. Svo ekkert meira bretti næstu vikuna allavega. Annars er næsta fríið mitt á nýársdag með Siggu, Óskari og Jakobi. Gæti reyndar vel verið að maður myndi kíkja smá á bretti þá. Kemur í ljós.
En það er allt bara stórgott að frétta af mér, ég hef ekki undan neinu að kvarta. Hér er allt eins gott og á verður kosið og ég er að njóta þess að vera hérna í botn. Gunnar ætlar svo kannski að koma hingað um páskana. Wünderbar.
Annars ef einhver vill koma að heimsækja okkur frá Íslandi þá er það lítið mál, ég er ein í 2ja manna íbúð svo nóg er um plássið.
Ég er að elska lífið. Kannski bara fyrir utan hálsmeiðslin í augnablikinu og pissið mitt. Það er eiginlega bara neon-gult. Veit ekki alveg hvort það sé útaf B-vítamíninu eða hvað, en ég reyni að drekka eins mikið af vatni og ég get. Vonum að þetta lagist á næstunni ...
Annars ætla ég að lesa smá í Horfðu á mig og fara svo að sofa snemma. Ekki veitir af. Geislakogul brettaskemmtunin er á næsta leyti ásamt áramótunum svo það er nóg um að vera hérna.
En þangað til næst, eigið góða daga =)
,, Johanna, hast du Zeit oder? " - mjög algeng spurning ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Ohh ég öfunda þig svo! Mig langar að koma og vera með þér að vinna þarna!! Geturu ekki bara reddað mér vinnu!:D
Farðu nú samt varlega á brettinu, það getur verið stórhættulegt.
Hafðu það gott;*
Nei við vorum einmitt að tala við starfsmannastjórann fyrir 3 dögum síðan um vinnu handa huldu, en það er ekkert laust. Hann ætlaði samt að láta okkur vita ef e-ð losnar ... stórefa það samt =/
KEIN Gemüse. Kein með nafnorðum, ekki nicht. Jóhanna, bitte.
Annars er ég alveg ógeðslega abbó hérna heima. Fæ reyndar að fara til Þýskalands í feb á eitthvað súrt námskeið með skólanum en ég væri alveg til í að vera að upplifa ævintýrið þitt.
kær kveðja
litli þýskuneminn að deyja úr útþrá heima á íslandi.
jæja þá, ég verð bara íhuga heimsókn í staðinn:D
Post a Comment