05/01/2010

Tchüss bis morgen.

Já kútarnir mínir. Þetta voru frábær áramót. Í alvöru, þá hafa flest áramót bara verið svona, alltílæ. En þessi voru frábær. Það var partý í íbúðinni minni. Við Íslendingarnir vorum þar öll og þar að auki spánverjarnir, Domingo og Miguel. Strákarnir mættu með gítarinn og við sungum allt kvöldið. Svo fórum við út og skutum rakettum hvort að öðru. Þ.e. Þjóðverjarnir skutu rakettum að okkur, og Sigsig meiddi sig. Þeir kunna ekkert á öryggisatriði. Hálfvitar. En svo skelltum við okkur á Kuck kuck og sátum úti fyrst að spjalla. Svo fórum við inn að dansa og þá var ein miðaldra kona fyrir aftan okkur að dansa sem var alltaf að sparka í okkur Siggu. Veit ekki alveg hvað hún var að spá, en allavega. Það var samt gaman. Svo fórum við á Bierhimmel, skelltum í okkur hamborgara (sem var meira svona kjötfarsborgari, aldrei að fá sér hammara aftur í Östría) og svo var farið á efri hæðina. Allt kröggt af fólki dansandi út um allt. Og auðvitað joinaði maður það. Perla á myndband af mér að dansa Macarena uppá borði með Niko þetta kvöld. Legendary, eins og Barney vinur okkar myndi orða það.

Svo á nýársdag var maður í fríi. Komst ekki mikið úr verki.

Var svo aftur í fríi i gær. Þá fór ég ein á bretti. Gat alveg rennt mér 3 ferðir án þess að drepa mig. Datt alveg slatta, enda eru marblettirnir á fótunum á mér því til sönnunar. En ég dó ekki. Reyndar fundu Óskar og Jakob sig knúna til þess að taka e-ð leikskólakennarahlutverk að sér í 2.ferð og renndu sér niður með mér. Stoppuðu reglulega og athuguðu hvort það væri ekki allt í lagi.

Þetta var líka gert í síðastu Night ski ferð. Þá vorum við 5 að bretta niður fjallið og krakkarnir stoppuðu alltaf reglulega og reyndu að segja mér til. Ekki það að ég kunni ekki að meta það, mér líður bara alltaf eins og einhverjum seinþroska smákrakka þegar ég er með þessu fólki á bretti. Þau eru öll svo vængefið góð, og ég er litli byrjandinn sem kann ekki neitt nema slide-stop. Ég verð orðin jafngóð og þau í apríl. Markmið ársins.

Svo fór ég út að borða með stelpunum, apótek, banka og allskonar snúninga. Um kvöldið spiluðum við svo nýja spilið sem Jakob fékk í jólagjöf, Heilaspuna. Það var sjúklega gaman. Ég vann reyndar ekki alveg, eeeen ég verð heppnari í spilum næst!

Allt bestasta að frétta af mér fyrir utan það að ég vakna svona 4 sinnum á nóttunni við það að ég get ekki andað. Of mikið af hori og slími í hálsi og nefi. Neserilið ætti að redda þessu. Og lýsið.

Ást á það að vera burtu frá allri Icesave umræðu í augablikinu. Úff.

Hlakka til að fara samt aftur í stjórnmálafræði og vísindaferðir. Í haust.

Akkúrat 2 mánuðir í afmælið mitt í dag. Þá verð ég 21 árs. Nenni ekki að vera svona gömul. Oj. Seventeen again, please?

Ókei samt. Það hefur sjaldan verið eins viðbjóðslega æðislegt að vera til. Og þetta gæti maður ekki ef maður væri ennþá í MR. Svo þessi aldur er víst í lagi. Í bili.

,, Don't do the crime if you can't do the time." - Heilræði ferðarinnar a la Sigga ...

1 comment:

Lísbet said...

Voru örugglega skemmtilegri áramótin hjá þér heldur en hérna heima sko..:D
Þú verður að setja þetta myndband inn!;)

Og já við erum virkilega að verða gamlar..

Skype-date á morgunn jafnvel? Langar að sjá þitt fríða fés og heyra hvernig þýskan er orðin:D