29/04/2007

Sorgleg helgi.

Já góðir hálsar. Ég er við það að myrða my sister from another father. Í dag var ég ekki heima, að læra. Þegar ég kom til baka var hún búin að fikta í tölvunni minni, myndavélinni minni og borða nammið mitt. Eina ástæðan fyrir því að ég er ekki frammi að lemja úr henni heimskuna er að það eru gestir frammi. En þegar þeir eru farnir ....

Ég er byrjuð að hata dönsku eftir að ég byrjaði að kenna manninum sem mætti á líkbíl fyrsta skóladaginn. Ég er búin að vera svo pirruð í dag.

Á föstudaginn fór ég á grímuball, án búnings. Ég var búin að gleyma að fá lánaðann ofurbúninginn hennar Hillu. Ég var á bíl, og heimferðin var skemmtilegri en ballið sjálft. Ég fór í 2 sjoppur. Freyja reyndi við Pétur - sem allt getur. Hún öskraði líka út um gluggann á einhverjar stelpur að þær væru helvítis hórur. Góður leikur. Svo tilkynnti hún einhverju ógeði sem vildi fá far heim að hann væri of leiðinlegur. Stundum er gott að vera með fólki sem er hreinskilið.

Ég kom heim af ballinu kl. 03. Ég svaf í 16 tíma, leigði mér svo vídjó og fór aftur að sofa. Í dag lærði ég. Helgin var sorgleg í öðru veldi.

Núna ætla ég bara að horfá sjónvarpið, og fara snemma að sofa. Já, ég lifi á ystu nös.

26/04/2007

Jafnrétti?

Já góðir hálsar. Í dag var ég að kynna mér stefnur flokkanna í kjölfar stórrifrildis milli okkar bekkjarfélaganna. Það voru vinstri grænn á móti hægri sinnuðum.

Af hverju er fólk með ríkisvæðingu? Það er eitt það heimskulegasta sem ég veit.

Og af hverju styður fólk nýja jafnréttislagafrumvarpið? Það er meira en fáránlegt. Ég skil ekki jafnréttissinna. Og það að ríkisstofnanir séu skyldugar til að hafa jafnmargar konur og karla í fyrirtækjum. Eigum við þá bara að reka allar kennslukonurnar, leikskólakennarana og hjúkrunarkonurnar, bara af því þær eru með píku.

Af hverju skipta hæfileikar, eiginleikar, áhugamál og sjálf persónan ekki meira máli heldur en kynfærin? Maður spyr sig.

Annars fór ég á námskeið í dag til að mega vinna í Ölver. Núna get ég aðgreint barn sem hefur orðið fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi, frá restinni.

Þetta er mjög algengt hérna í þjóðfélaginu. Það kom upp atvik á leikjanámskeiðinu í fyrra. Maður áttar sig bara stundum ekki á því að þjóðfélagið er ekki fullkomið.

Kemst ekki á næstu 2 námskeið. Útaf aðgerðinni. Ég hlakka ekki til. Ég hræðist sjúkrahús, og það að þurfa að dvelja á því í 1 sólarhring eftir aðgerðina er ekki skárra. Ég verð einmana. Maturinn er vondur og lyktin ....

Annars er síminn minn ónýtur.

Grímuball á morgun. Og lærdómur. Oj.

Af hverju þurfa flokkarnir alltaf að tala niður til hvors annars? Það er yfirmáta barnalegt.

24/04/2007

S eða D?

Já góðir hálsar. Ég er að gera þessa færslu í annað skiptið af því að ég kann ekki neitt.

Sauð pylsur í fyrsta skipti í gær. Bauð Láru í pítsu áðan. Kannski eru einhver húsmæðragen í mér eftir allt saman.

Þýskt munnlegt próf í dag. Nicht gut.

Ég er búin með allar seríurnar af Sex in the City. Ég grét þegar ég sá síðasta þáttinn fyrir 3 árum og ég grét líka núna.

Ég er byrjuð að læra undir vorprófin með nánast enga heimavinnu á bakinu á meðan fjölbrautaskólanemendum er drekkt í ritgerðum og prófum í síðustu vikunni. Stundum er bekkjarkerfið alls ekki svo slæmt.

Þyri á bara eftir að kenna mér í 2 kennslustundir í viðbót, þá er ég orðin stúdent í dönsku. Loksins, eftir 6 ára nám.

Sumarið mitt verður vonandi æðislegt. Það er komið plan fyrir það nú þegar.

Eftir próf fer 1 vika í að fara í aðgerð og jafna mig.
Svo vinn ég í Ölver í 7 vikur.
Fer til Englands í 2 vikur.
Fer til Danmerkur í 1 viku.
Og svo byrja ég í 5.bekk. Vonandi.

Þorgerður Katrín kom í skólann í hádeginu í dag. Hún er ekki eins full af skít og ég bjóst við. Hvort á ég að kjósa Samfylkinguna eða Sjálfstæðisflokkinn í vor? Það er ekkert mikið því til fyrirstöðu að ég kjósi Sjálfstæðisflokkinn. Bara Íraksstríðið og Ragnheiður Elín Árnadóttir. Samt ...

Núna þarf ég að læra, borða nammi, taka til og fara í sturtu.

Ég er alltaf að lifa sama daginn, aftur og aftur.

21/04/2007

Sex and the City

Já góðir hálsar. Ég heiti Jóhanna, og ég er fíkill.

Síðustu 12 klukkustundirnar hef ég setið fyrir framan sjónvarpið og horft á Sex and the City. Það þýða 24 þættir.

Á laugardagskvöldi.

Á föstudagskvöldið svaf ég.

Ég er farin að verða einstaklega sorgleg.

Ég veit vel af hverju ég er búin að horfá Carrie Bradshaw í allan dag. Það er stærðfræðipróf á mánudaginn.

Ég er svo kvíðin. Ég þori ekki einu sinni að taka fram bækurnar því að ég hef ákveðið það fyrirfram að ég eigi ekki eftir að skilja námsefnið.

Ég er dauðhrædd. Bæði við þessa ægilegu, grænu bók með öllum þessum óskiljanlegu skilgreiningum og hornafallsreikningum, og við þá staðreynd að ég gæti fallið í áfanganum. Það þýðir fall á árinu og annar skóli.

Eftir samtal við stelpurnar í skólanum byrjaði ég að hugsa hversu heitt ég elskaði MR í raun og veru. Þar hafði ég sýkst af prófkvíðaröskun og lélegu sjálfsmati. Eina ástæðan fyrir því að Perla og Kristín hafa ekki hætt í MR er vegna æskudraums. Þær ætla að vera læknar. Einnig vegna félagslífsins. Stundum spyr ég mig að því af hverju ég sé ekki löngu hætt. Af hverju ég held áfram að pína mig í gegn um þetta.

Ég hef engan áhuga á því að vera læknir, eðlisfræðingur eða verkfræðingur, en það er það sem þetta nám gengur út á. Að veita góðan grunn fyrir þá sem ætla sér að verða eitthvað stórt. Ég ætla ekki að verða neitt stórt. Bara eitthvað sem gerir mig hamingjusama.

En ég veit af hverju ég er ennþá í MR. Ég veit að það skilja mig ekki allir, en ég skal sigrast á óskiljanlegum skilgreiningum. Bara af því ég gefst ekki upp.

Ég gefst ekki upp, jafnvel þótt allt virðist vinna gegn mér þessa stundina.

Ég þarf bara smá hjálp. Einhvern til að toga mig útúr myrkrinu.

Ich bin krank

Já góðir hálsar. Ég er veik.

Á sumardaginn fyrsta var ég með hita. Fór í skólann á föstudeginum með hita, og ég get ekki sagt að það hafi verið það gáfulegasta sem ég hef gert.

Ég kom heim úr skólanum, horfði á sjónvarpið og sofnaði um kvöldmatarleytið.

Ég vaknaði svo núna um 1 leytið, útsofin eftir 16 tíma svefn.

Dreymdi líka alveg fáránlega mikið í nótt.

En já. Í hádeginu í gær skelltum við okkur niður í bæ eins og vanalega. Að hluta til bara til að sjá brunarústirnar. Mjög sorglegt.

Það er ekki hægt að flýta aðgerðinni, þannig ég verð að bíða í góðan mánuð í viðbót eftir bót á minni heilsu. En ég heppin.

Allavega, þá ætla ég að taka inn lyfin mín og skella mér svo í lærdóminn. Hef ég minnst á það hve heitt ég elska stærðfræðipróf?

18/04/2007

Í ljósum logum

Já góðir hálsar. Lífið hefur ekki verið mjög afdrifaríkt uppá síðkastið. Íslenskukennarinn minn elskar minn enn, ostaslaufurnar í Kakólandi eru enn á sínum stað og strætóferðirnar alltaf jafn skemmtilegar. Reyndar er ég orðin atvinnulaus. Það er allt og sumt.

Þegar ég var að koma úr skólanum kl. 14 í dag heyrði ég í þessum rosalegu sírenum. Ég athugaði málið ekkert betur, enda ekki sjaldan sem þau hljóð berast um borgina. Þess í stað fór ég niður í Cösu og byrjaði að læra undir vorprófin, enda veitir ekki af. Þegar ég hélt svo heim á leið var þessi rosalegi reykur um alla Lækjargötu. Það var kviknað í miðbænum. Fáránleg sjón. Allur þessi eldur. Yfir 100 áhorfendur, sjónvarpsupptökulið, 4 slökkviliðsbílar, sjúkrabílar og lögreglubílar. Allir búðaeigendur á Laugavegi voru á götum úti, agndofa af undrun og strætókerfið lá niðri, enda Lækjargatan mikilvægur áningastaður fyrir yfir 10 strætisvagna.

Gangaslagurinn verður kannski ekki í ár vegna þess hvað gerðist í fyrra. Mikil synd.

Ég og Lára vorum að leigja bústað helgina áður en vorprófin byrja. Þar verður sko lært.

Lára ætlar svo að bjóða okkur vinkonunum í mat í kvöld. Það verður æðislegt. Einhverjar fara svo á Pendulum. Nennti ekki að standa í því að redda mér skílríkjum. Þekki enga kvenkyns 20 ára dökkhærða krulluhausa.

Ég er hætt að naga neglurnar. Ég skil ekki hvernig mér tókst það.

Við svöruðum kennslukönnun í dag. Þyri fékk falleinkunn.

Núna ætla ég að læra aðeins, enda ekki langt í prófin.

,, Ekki tempta mín.'' - Sagði ég um daginn, ómeðvituð um það að ég hugsaði á ensku ...

13/04/2007

Hvar er hann?

Hafið þið ekki heyrt um þá kenningu að við fæðumst öll með ófullkomna sál. Hún er ófullgerð og leitandi. Að einhverstaðar í heiminum hafi fæðst manneskja sérstaklega ætluð okkur sjálfum og að þegar við kynnumst þessari persónu verður sálin fullkomnuð. Við þurfum ekki að leita lengra, því við höfum fundið hina einu sönnu ást.

Þó að persónulega trúi ég því að ástin sé óútreiknanleg og ekki hægt að rannsaka á neinn hátt, þá er þessi kenning ekkert fráleitari en hver önnur.

Ein af mínum uppáhalds hljómsveitum, Dikta, samdi lag með allt aðra nálgun á þessa kenningu en ég hef áður íhugað. Í laginu "Someone, Somewhere" koma þeir með mjög áhugaverða athugasemd. Hvað ef þessi eini sanni sé dáinn? Kannski var hann einn af þeim sem létust í bílslysi á síðasta ári, langt fyrir aldur fram. Hver veit? Kannski er sumum af okkur einfaldlega ekki ætluð ást.

Hvernig getum við verið viss um að það sé einhver þarna úti, sem henti okkur? Sem við getum deilt með okkar innstu leyndarmálum og væntingum. Sem við getum verið ástfangin af.

Ég hef lent í samræðum við fólk sem finnst afskaplega áhugavert að verstu nördar, afbrotamenn og furðufuglar eiga auðveldara með að ná sér í maka heldur en við sem erum "venjuleg", þótt ég viti í rauninni ekki í hvaða dálk ég flokkast. Vinur minn kom með athyglisverða kenningu.

Við erum einfaldlega of kröfuhörð. Við teljum okkur yfir aðra hafin að vissu leyti og sættum okkur ekki við hvað sem er. Það er mikið til í þessu.

,,In a city full of great expectations, is it time to settle for what you can get? " - Carrie Bradshaw ...

Nefop

Já góðir hálsar. Það er ýmislegt sem maður þarf að leggja á sig í náminu.

Núna á þriðjudaginn skrifaði ég 1350 orða fyrirlestur um laserprentara fyrir tölvufræði. Það var svo sjúklega leiðinlegt að það draup af mér fýlan þegar ég las hann upp í gær. Hann fékk ekki góðar viðtökur, en þar sem mér gæti ekki verið meira sama um tölvufræði ætla ég ekkert að fara að gráta yfir því.

Kinnholusýkingin er að drepa mig. Ég er með stanslausan hausverk og get ekki snert á mér kinnarnar. Fór til læknis í dag. Þarf að fara í röntgenmyndatöku í næstu viku og þar á eftir í litla aðgerð.

Eftir aðgerðina þarf ég að dvelja í sólarhring á spítala og aðra 5 daga frá vinnu/skóla. Þá get ég ekki farið í aðgerðina fyrr en eftir vorprófin, sem er í fyrsta lagi 29.maí. Það þýðir meira en mánuður í viðbót af þessu ógeði.

Í aðgerðinni verður opnað nýtt gat í nefinu á mér. Til þess verður brotið bein. Mig langaði helst til að biðja lækninn bara að fjarlægja þetta risastóra bein sem hefur myndað nefið á mér í leiðinni. En þar sem Sarah Jessica Parker er líka óánægð með nefið á sér getum við verið saman í liði um hríð.

Jóhanna Vala var í 2.sæti í Ungfrú Reykjavík. Ég kýs að halda því fram að nafngiftin sé ástæðan fyrir árangrinum. Það bregst ekki að það er alltaf ein Jóhanna að keppa í Ungfrú Ísland á hverju ári, enda um 2.500 konur á Íslandi sem bera nafnið. Mjög sérstakt nafn.

Eftir þessa helgi hætti ég í bakaríinu. Get ekki beðið.

Annars er gamli metnaðurinn farinn að láta aftur á sér kræla. Er afsakplega iðinn við bækurnar þessa dagana.

Bara 2 vikur í fyrsta prófið af 11. Gangi mér vel.

11/04/2007

Nörd.

Já góðir hálsar. Ef ég er ekki nörd, þá veit ég ekki hvað. Stelpan var hæðst í bekknum í efnafræðiprófinu með 10.0 ....

Ég fékk afmælisgjöfina mína í dag frá Láru, Ylfu, Freyju, Anítu, Báru, Ásgerði og Lísbet. Það voru fyrstu 3 þáttaraðirnar af Sex in the City á dvd.

Ég get eiginlega ekki lýst því hvað ég hef þráð þetta lengi. Ég er ólýsanlega glöð og er hissa á því að stelpurnar geti lesið hugsanir. Þá hef ég allavega eitthvað til að horfa á á kvöldin í Ölver.

Takk :*

Ég fann loksins danska smásöguheftið mitt eftir 2 daga dauðaleit. Það var innan um þýskuglósurnar mínar síðan í 3.bekk. Helvítis vandræði.

Ég keypti mér ekki kápuna sem ég var svo veik fyrir í dag. Held að það sé að þróast dálítill Jóakim í mér.

,, High five! '' - Sagði Bragi íslenskukennari við mig og gaf mér fimmuna þegar ég sagði honum að ég væri búin með Egils-sögu ....

FACE :)

09/04/2007

Endalokin

Já góðir hálsar. Núna nálgast endalokin á páskafríinu óðum.

Fór á ball á sunnudaginn. Hver djammar á páskadag? Alveg ágætt ball. Gaman að hitta fólk sem maður sér aldrei.

Í kvöld var ég á rúntinum. Eina skemmtunin sem er í boði hér á þessum útkjálka. Ég keyrði meiraðsegja. Ylfa, Magnús, Lára og Ásgerður eru frábærir félagar og voru alls ekki til að skemma kvöldið fyrir mér. Fórum samt fjórum sinnum í sjoppu. Ég er ekki feit.

Kvöddum Ásgerði sem er að fara að fljúga aftur heim í fyrramálið. Ég á ekki eftir að sjá hana neitt fyrren í ágúst. Þ.e.a.s. ef ég fer til Danmerkur í ágúst. Sumarvinnan í Ölver verður því að vissu leyti félagslegt sjálfsmorð. En ég meina, ég með þroska á við 5 ára ætti alveg að finna mig þar.

Ég ætla að enda hér með frábærri mynd í lélegum gæðum af mér og bestu vinkonum mínum í óvissuferðinni eftir að síðasta samræmda prófinu lauk.

http://s3.amazonaws.com/photoape/7064/7064_10396_1175807302414_photo_vissufer10bekkjar017jpg.jpg?AWSAccessKeyId=0RC0190437NH01ZYT002&Expires=1176176975&Signature=mrvOGwQagmTlVs7m8ZcotYmEG3Q%3D

Já, ég kann ekki að setja myndir hérna inn ennþá.

p.s., ef ég er ekki óheppnasta manneskja í heimi, þá veit ég ekki hvað.

07/04/2007

Afmæli

Já góðir hálsar. Hélt uppá afmælið mitt í gær, mánuði of seint.

Ég bauð 8 manneskjum í afmælið mitt, en einungis 4 höfðu sæmd í sér að mæta. Þið hin skuldið mér samt sem áður afmælisgjöf.

Ég fékk dvd-disk. Sviger monster. Beint frá kóngsins Köbenhavn. Takk Ásgerður :*

Í staðinn fyrir að fá afmælisgjafir leysti ég gestina út með fötum. Samkvæmt hefð hefði það átt að vera á hinn veginn, en hvaða hvaða. Ég hafði tekið til í fata- og skóskápnum mínum fyrr um daginn þegar ég tók hefbergið mitt í gegn. Ég gat losað mig við 3 peysur, bol og skó, en restin er í svörtum ruslapoka á leiðinni til mæðrastyrksnefndar. Það er nú ekki eins og þessi föt séu gömul og slitin, en flest af þeim hafa einungis upplifað eina til tvær ferðir í þvottavélinni. Ég hef bara ekki tíma til að ganga í öllum fötunum sem ég á.

Ég þarf samt að taka mig á. Ég á 11 gallabuxur, 7 svartar joggingbuxur, 20 peysur, 20 boli, 20 hlýraboli, 8 kjóla, 7 jakka og fleiri brjóstahaldara en telst eðlilegt. Ég geri mér vel grein fyrir því að ég geng ekki í helmingnum af þessu.

Núna þar sem ég er að hætta í vinnunni neyðist ég samt til að taka mér annað fólk til fyrirmyndar. Þar á meðal Jóakim Aðalönd.

Annars var þetta mjög ánægjuleg veisla. Fámennt, en góðmennt. Mikið borðað ... og ropað.

Svo fór ég heim til Ásgerðar og gisti þar með Freyju. Fékk lítinn svefn, enda var hringt í mig kl. 08:00 og beðið mig um að koma á aukavakt. Efa að það sé 12.000 króna virði að eyðileggja á sér bakið, éta á sig gat og vera feitur.

05/04/2007

Páskafrí

Já góðir hálsar.

Ég ætlaði að vera rosalega dugleg í páskafríinu. Ég ætlaði að:

  • Lesa alla Egils-sögu og glósa hana
  • Glósa alla Snorra-Eddu
  • Glósa restina af sögubókinni
  • Læra helling af lesinni stærðfræði
  • Klára að reikna restina af stærðfræðibókinni
  • Halda upp á afmælið mitt
  • Fara í Bláa lónið

Ég á bara eftir að standa við það að halda uppá afmælið mitt. Á morgun. Keypti inn í dag. Þarf örugglega ekkert að borða næstu dagana á eftir.

Það er ekki fyrr en á kvöldin að ég fæ samviskubit yfir því hvernig dagurinn hefur farið. Þar á móti er ég að hitta stelpurnar, en þær hef ég vanrækt á meðan námið hefur gengið fyrir. Kannski bara tími til kominn að vanrækja bækurnar og rækta vináttuna.

Það er samt alveg sjúklega notalegt að hanga bara.

,, Já ég fíla geðveikt gaura sem vilja kúra, en samt fíla ég ekki gaura sem nenna ekki að kúra.'' - Sagði Anna Kvaran ....

Einmanaleiki

Páskafríið komið vel á veg og ég hef ekki gert neitt.

Ekki neitt.

Hefur einhver af ykkur upplifað nístandi einmanaleika, þrátt fyrir þá staðreynd að í kring um ykkur eru margir af ykkar bestu vinum og kunningjum?

Ég geri það stundum.