13/04/2007

Hvar er hann?

Hafið þið ekki heyrt um þá kenningu að við fæðumst öll með ófullkomna sál. Hún er ófullgerð og leitandi. Að einhverstaðar í heiminum hafi fæðst manneskja sérstaklega ætluð okkur sjálfum og að þegar við kynnumst þessari persónu verður sálin fullkomnuð. Við þurfum ekki að leita lengra, því við höfum fundið hina einu sönnu ást.

Þó að persónulega trúi ég því að ástin sé óútreiknanleg og ekki hægt að rannsaka á neinn hátt, þá er þessi kenning ekkert fráleitari en hver önnur.

Ein af mínum uppáhalds hljómsveitum, Dikta, samdi lag með allt aðra nálgun á þessa kenningu en ég hef áður íhugað. Í laginu "Someone, Somewhere" koma þeir með mjög áhugaverða athugasemd. Hvað ef þessi eini sanni sé dáinn? Kannski var hann einn af þeim sem létust í bílslysi á síðasta ári, langt fyrir aldur fram. Hver veit? Kannski er sumum af okkur einfaldlega ekki ætluð ást.

Hvernig getum við verið viss um að það sé einhver þarna úti, sem henti okkur? Sem við getum deilt með okkar innstu leyndarmálum og væntingum. Sem við getum verið ástfangin af.

Ég hef lent í samræðum við fólk sem finnst afskaplega áhugavert að verstu nördar, afbrotamenn og furðufuglar eiga auðveldara með að ná sér í maka heldur en við sem erum "venjuleg", þótt ég viti í rauninni ekki í hvaða dálk ég flokkast. Vinur minn kom með athyglisverða kenningu.

Við erum einfaldlega of kröfuhörð. Við teljum okkur yfir aðra hafin að vissu leyti og sættum okkur ekki við hvað sem er. Það er mikið til í þessu.

,,In a city full of great expectations, is it time to settle for what you can get? " - Carrie Bradshaw ...

1 comment:

Anonymous said...

draumaprinsinn kemur þegar þú átt minnst von á honum;)..