Já góðir hálsar. Það er ýmislegt sem maður þarf að leggja á sig í náminu.
Núna á þriðjudaginn skrifaði ég 1350 orða fyrirlestur um laserprentara fyrir tölvufræði. Það var svo sjúklega leiðinlegt að það draup af mér fýlan þegar ég las hann upp í gær. Hann fékk ekki góðar viðtökur, en þar sem mér gæti ekki verið meira sama um tölvufræði ætla ég ekkert að fara að gráta yfir því.
Kinnholusýkingin er að drepa mig. Ég er með stanslausan hausverk og get ekki snert á mér kinnarnar. Fór til læknis í dag. Þarf að fara í röntgenmyndatöku í næstu viku og þar á eftir í litla aðgerð.
Eftir aðgerðina þarf ég að dvelja í sólarhring á spítala og aðra 5 daga frá vinnu/skóla. Þá get ég ekki farið í aðgerðina fyrr en eftir vorprófin, sem er í fyrsta lagi 29.maí. Það þýðir meira en mánuður í viðbót af þessu ógeði.
Í aðgerðinni verður opnað nýtt gat í nefinu á mér. Til þess verður brotið bein. Mig langaði helst til að biðja lækninn bara að fjarlægja þetta risastóra bein sem hefur myndað nefið á mér í leiðinni. En þar sem Sarah Jessica Parker er líka óánægð með nefið á sér getum við verið saman í liði um hríð.
Jóhanna Vala var í 2.sæti í Ungfrú Reykjavík. Ég kýs að halda því fram að nafngiftin sé ástæðan fyrir árangrinum. Það bregst ekki að það er alltaf ein Jóhanna að keppa í Ungfrú Ísland á hverju ári, enda um 2.500 konur á Íslandi sem bera nafnið. Mjög sérstakt nafn.
Eftir þessa helgi hætti ég í bakaríinu. Get ekki beðið.
Annars er gamli metnaðurinn farinn að láta aftur á sér kræla. Er afsakplega iðinn við bækurnar þessa dagana.
Bara 2 vikur í fyrsta prófið af 11. Gangi mér vel.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment