09/07/2007

Reiðufé.

Já góðir hálsar.

Ég á íbúð. Við borguðum hana í reiðufé.

Óraunverulegt að labba um með 2.200.000 krónur í plastpoka.

Þá er ég víst ekki milljónamæringur lengur.

Írskir dagar voru frábærir. Helgin var æðisleg í alla staði. Matarboð, bíltúrar, morgunblóm og vetrarsteinar. Tott á túnum og Bubbi. Rauðhært fólk og lopapeysur.

Gott að komast í smá frí.

18 dagar eftir á Íslandi, svo fer ég til Englands og verð þar í 17 daga. Þá er sumarið búið ..

,, Jóhanna, við skulum sko hafa það á hreinu að við vöknuðum kl. 3 í nótt við það að það flæddi inn í tjaldið okkar. Við þurftum að yfirgefa tjaldstæðið og fara á hótel þar sem við þurftum að bíða eftir herbergi í 6 klst. '' - Sagði Perla við mig í símann, en hún var á Hróarskeldu ...

3 comments:

Anonymous said...

haha hvaða brandari var þetta 'tott á túnum' aftur??? mig rámar eitthvað í hann eða er ég alveg orðin..

æjj kannski að ´þú útskýrir það bara seinna!

Anonymous said...

kv lotte

og til hamingju aftur með íbúðina:*

Jóhanna said...

Æji við sáum par í action úti á túni á föstudeginum.

Vorum að gera grín að því af því þetta var ekki beint besti staðurinn til að stunda þetta =D hehe

Og TAKK!!