18/03/2008

Páskafrí.

Já góðir hálsar. Páskafríið hefur staðið yfir núna í 4 daga og ég get ekki sagt að ég hafi verið neitt sérstaklega dugleg.

Ég hef lesið 1 kafla í Chemistry og glósað 2 kafla í eðlisfræði. Vá.

Ég hef löggilda afsökun fyrir letinni. Ásgerður var á landinu og maður varð að eyða smá tíma með Dananum sínum.

Í staðinn fyrir áætlaða innilokun hef ég eytt þessum dögum í sundi, á rúntinum, kaupa ís og smakka rauðvín. Í dag var ég reyndar innilokuð á bókasafninu. Húrra fyrir því.

Ég hélt uppá afmælið mitt um daginn. Það var sjúklega kósí. Veitingar í boði fermingartímabilsins og ég fékk fallegar gjafir.

Ég fór í matarboð til mömmu um daginn. Það er að segja í skólann til hennar. Þar fékk ég að smakka lynghænu, humar, önd, gæs ... og allt. Mjög fróðlegt kvöld.

Vinna um helgina. Strætó til Reykjavíkur. Oj.

,, Heyrðu! Það er bannað að kúka í pottinn." - Öskraði Ylfa þegar við stelpurnar kíktum í pottinn til hennar í gær ...

1 comment:

Anonymous said...

bæði skiptin sem þú hefur vitnað í mál mitt, eða comment sem koma frá mér, þá hefur það í bæði skiptin verið um kúk, hvað er málið? :D