10/06/2008

Hvíld.

Já góðir hálsar. Soldið langt síðan síðast.

Ég er byrjuð að vinna á leikjanámskeiðinu og það er alveg ágætt. Reyndar er það alltaf gaman, nema í þessari viku. Þá er það meira brjálæði. Við erum með 40 börn, og ég er að segja ykkur það, þetta er brjálæði. Í síðustu viku voru 16 og það var fínn fjöldi. Þetta er rosalegt. Foreldrar á Akranesi vita greinilega ekki hvað gera á við börnin sín á þessum árstíma. Sumir neyða jafnvel börnin á leikjanámskeiðið, og þá er náttúrulega bara gaman hjá okkur.

Ég hef lítið gert síðan skólanum lauk. Fara í vinnuna, koma heim og horfá despó og tana sig í drasl er það helsta á minni dagskrá. Ég er að hvíla mig eftir einkirningasóttina og MR ógeðið. Ég leyfi mér alveg að vera löt.

Ég hélt matarboð um helgina. Pítsur svona það helsta á matseðlinum. Það eina sem ég kann að elda, þótt ég hafi reyndar lítið komið nálægt því.

Afrekaði það um helgina að fara á Laugarveginn, í Smáralind og Kringluna allt á sama degi. Ég var að leita mér að gleraugum. Þau fundust eftir mikla leit og ég fæ þau eftir tæpa viku. Ójá.

Í gær seldi ég eiginlega íbúðina mína. Samt bara munnlega. Á eftir að ganga frá öllum pappírum seinna í júní. En samt ... ég er búin að selja. Loksins, loksins. Stjörnuspáin segir allt gott um málið. Það er meira kúl að eiga pening inná bankareikningnum sínum í stað þess að eiga íbúð með ónýta skólplögn. Soldið meira kúl allavega.

Ég er soldið mikið að fara til Danmerkur eftir 9 daga.

Og Rhódos eftir svona 50.

Ég æpi inni í mér úr gleði.

,, Þú ert með skrýtið nef.'' - Alltaf komast blessuð börnin vel að orði þegar horft er framan í mig ...

1 comment:

Hildigunnur said...

6 dagar JoJo!

fór á LA bar í gær.. aðeins að hita upp;)