28/05/2008

Endalok.

Já góðir hálsar. Þriðja skólaárinu er hér með lokið. Ég er frjáls.

Tók síðasta prófið fyrir 2 dögum síðan og fékk einkunnir afhentar í dag. Ég er mjöööög sátt.

Ég fékk 9 í líffræði. Ég er að segja ykkur það, ég er natúral wünderkind í þessari grein. Osom.

Einkunnin sem ég er samt ánægðust með er eðlisfræði. Stúdentspróf í eðlisfræði: 7.5

Veivei.

Kæru lesendur, hér með er það staðfest. Ég hef lokið öllum þessu ógeðslegu raungreinum. Ég er stúdent. Ég þarf aldrei að læra þetta aftur.

Á næsta ári er það bara íslenska, stærðfræði, líffræði, saga, jarðfræði og heimspeki. Lífið er ljúft.
En áður en ég byrja í 6.bekk þarf ég samt að fara til Danmerkur, fara á bíladaga, írska daga, ættarmót, landsmót og síðast en ekki síst, Rhódos.

Byrjaði í vinnunni í gær. Bjó til plaköt, bar kassa og hjólaði í fyrirtæki. Allt voða skemmtilegt.

Ég tók hláturskast áðan þegar maðurinn í kvikmyndinni Death at a Funeral borðaði óvart smá kúk úr frænda sínum. Ég hef einfaldan húmor.

,, It doesn't matter if you failed or succeded. The most important thing is that you tried.'' - Death at a funeral ...

1 comment:

Hulda said...

Hæ pjalla. Já erum við ekki að fara í partíið til perlu og siggu fröken??:)
hittumst kannski á morgun!