25/08/2008

Magaspeglun.

Já góðir hálsar. Ég er veikur. Ég er alltaf veikur.

Ég fór til læknis þegar ég kom heim frá Rhódos. Hann vill taka vefjasýni úr mér til þess að athuga hvort ég sé með glútenóþol. Ég fer semsagt uppá spítala á Akranesi á miðvikudaginn og þar mun verða framkvæmd á mér magaspeglun. Það er, einhver snúra mun vera sett ofan í magann á mér og taka bita úr skeifugörninni minni.




Læknirinn sagði að fram að magaspegluninni yrði ég að vera rosalega dugleg að borða allt sem inniheldur glúten til að maginn yrði í sem verstu ástandi. Ég held að mér hafi tekist það, því í dag var ég bara orðin virkilega veik. Maginn á mér er í hakki, ég er með hita, mér er skítkalt, ég svitna rosalega og mér líður bara alveg virkilega illa.

Skólinn er byrjaður. Samt ekkert kominn á fullt. Ég er bekkjaráðsmaður. Og í verklegri líffræði á fimmtudögum. Einu greinarnar sem ég er í eru stærðfræði, líffræði, íslenska, saga, jarðfræði, stjörnufræði, heimspeki og kvikmyndafræði. Og ég tek bara 4 jólapróf. Verður mjög indælt. En reyndar alveg þúst ... 15 vorpróf ...

Er komin með nýtt blogg. Samt bara fyrir kvikmyndafræðival. Það er kvikmyndagerd-johanna.blogspot.com. Afskaplega skemmtilegt.

Ég er of veik til að blogga meira. Ég vorkenni sjálfri mér rosalega í augnablikinu.

,, Adventure is just bad planning." - Roald Amundsen ...

No comments: