Jæja góðir hálsar. Eftir að bróðir hans pabba míns heitins bað mig um að endurvekja bloggið gat ég ekki annað. Ég var farin að sakna þess svo, enda ekki sett inn færslu síðan í nóvember.
Mikið búið að gerast síðan síðast, eeen. Ég ætla ekkert að fara að skrifa um það allt.
Það sem er á döfinni hinsvegar eeer 20 ára afmælið mitt. Ég get ekki beðið, mér finnst það frábært. Minna en mánuður í þetta. Tíminn líður, svei mér þá.
Ég held uppá það 27.febrúar með henni Huldu, enda ekki annað hægt. Ég hlakka alveg rosalega til. Langaði að hafa stórt afmæli, bæði til að þakka fólki óbeint fyrir stuðninginn síðustu vikurnar, og bara af því ég held það verði ógeðslega gaman.
Ég ætlaði að halda upp á tvítugs afmælið mitt 30.janúar á Klapparstíg 17, en það er víst ekki hægt lengur. Það var svolítið skrýtið að upplifa síðustu helgi. Ef allt hefði verið eðlilegt hefði þessari helgi verið eytt í flutninga og partý. Það er flutninga af Klapparstíg 17 yfir á Klapparstíg 11 og bæði empty-apartment partý og afmælipartý hjá mér. Enda hugsaði ég um lítið annað síðustu helgi.
Ég er samt flutt á Birkimel 8 í Reykjavík. Er að leigja herbergi hjá guðfræðinemanum Maríu og kærastanum hennar, leiklistarnemanum Ævari. Þau eru æðisleg. Herbergið er æðislegt. Staðsetningin er æðisleg. Þetta datt inn á síðustu stundu. Ég var flutt inn til mömmu og pabba á Akranesi og búin að búa þar í 2 vikur og taka strætó á milli. Það var rosalega erfitt, ekki í þeim skilningi að ég hati það að búa á Akranesi, heldur að þurfa að sætta sig við það að þurfa í raun að taka eitt skref afturábak í lífinu.
Samt talandi um afmælið mitt, þá hef ég við smá vandamál að stríða. Ég vil ekki fá neinar gjafir af því mig langar ekki til þess að eiga neitt. Þetta er í raun vandamál hjá okkur öllum, sem lentum í því að missa aleiguna í brunanum. Maður hefur enga löngun. Þótt það sé kannski fáránlegt, þá hugsar maður ósjálfrátt hver tilgangurinn sé með því að eiga fullt af fallegu dóti, það á eftir að hverfa hvort sem er.
Ég hef alveg verið að kaupa mér ýmislegt eftir brunann, og þá mest föt og skó, þótt ég hafi fengið rosalega mikið gefins frá vinkonum í þeim málum. Eiginlega allt annað en það, hef ég fengið gefins. Ég hef ekki þurft að kaupa mér snyrtivörur eða mikið af skóladóti því það eru fyrirtæki og stofnanir hér á landi sem eru frábærar.
Eina dótið sem ég á í raun hérna í herberginu er rúm, snyrtidót, föt og skólabækur. Veggirnir eru að mestu tómir og kannski frekar tómlegt hérna inni í vissum skilningi, en ég kann samt ágætlega við það. Auðvitað langar mig til að gera rosalega kósí hérna inni og þannig, en það er einhvern veginn enginn tilgangur lengur.
Ég veit reyndar að það er líka fáránlegt, en eitt af því versta þykir mér að allar bækurnar mínar brunnu. Mér er eiginlega drullusama um dót eins og þvottavélina, kommóðuna og skrifborðið. Maður tengdist því ekki eins tilfinningalegum böndum eins og maður tengdist bókunum sínum. Mig langar í þær allar aftur, en samt ekki.
Mjög lýsandi fyrir ástandið á mér er það að inni í nýja herberginu er ég ekki með neina hillu. Ég gerði það að ásettu ráði. Mig langar ekki að hafa tóma hillu inni hjá mér því ég á ekkert dót til að setja í hana.
Hlutirnir eru samt orðnir mun betri. Mér líður alltaf betur og betur. Reyni að horfa fram á við og halda áfram, þótt það sé alltaf erfitt. Það skilur líka enginn hvað það er erfitt. Fólk er kannski líka strax byrjað að gleyma því svolítið hvað ég á bágt ennþá. Ég hef engan áhuga á því að láta koma fram við mig eins og einhvern aumingja eins og gert var fyrst, en mig langar samt að fólk sýni því skilning að ég sé að ganga í gegn um eitthvað sem ... er ömurlegt og erfitt.
Ég trúi því heldur ekki að ég sé að fara í stjörnufræðipróf á morgun. Mig langar ekki.
-J
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
veihei.
ánægð með þessa bloggendurkomu þína!
Takk frænka.
Halló áhorfandi
Við erum að atvinnu kaupmenn, vinna sér inn í fremri og tvíundum fyrir fjárfesta vikulega, munum elska að segja þér allt meira um fjárfestingarvettvang okkar þar sem þú getur fjárfest fé allt að $ 200 og byrjað að þéna $ 2000 vikulega, margt fólk hefur notið góðs af þessari fjárfestingu bjóða upp á fyrir og meðan á þessari convid-19 vírus stendur, ef þú ert í gegnum fjárhagserfiðleika vegna þessa coronavirus og þú þarft hjálp við að borga reikninga, veldu einfaldlega viðeigandi fjárfestingaráætlun fyrir þig og byrjaðu að græða vikulega
$ 200 til að vinna sér inn $ 2.000 á 7 dögum
$ 300 til að vinna sér inn $ 3.000 á 7 dögum
$ 500 til að vinna sér inn $ 5.000 á 7 dögum
1000 $ til að vinna sér inn $ 10000 á 7 dögum
$ 5000 til að vinna sér inn $ 50.000 á 7 dögum
Til að hefja fjárfestingu núna
WhatsApp: +15022064419 eða sendu tölvupóst á tradewithcarlos2156@gmail.com
Post a Comment