07/04/2007

Afmæli

Já góðir hálsar. Hélt uppá afmælið mitt í gær, mánuði of seint.

Ég bauð 8 manneskjum í afmælið mitt, en einungis 4 höfðu sæmd í sér að mæta. Þið hin skuldið mér samt sem áður afmælisgjöf.

Ég fékk dvd-disk. Sviger monster. Beint frá kóngsins Köbenhavn. Takk Ásgerður :*

Í staðinn fyrir að fá afmælisgjafir leysti ég gestina út með fötum. Samkvæmt hefð hefði það átt að vera á hinn veginn, en hvaða hvaða. Ég hafði tekið til í fata- og skóskápnum mínum fyrr um daginn þegar ég tók hefbergið mitt í gegn. Ég gat losað mig við 3 peysur, bol og skó, en restin er í svörtum ruslapoka á leiðinni til mæðrastyrksnefndar. Það er nú ekki eins og þessi föt séu gömul og slitin, en flest af þeim hafa einungis upplifað eina til tvær ferðir í þvottavélinni. Ég hef bara ekki tíma til að ganga í öllum fötunum sem ég á.

Ég þarf samt að taka mig á. Ég á 11 gallabuxur, 7 svartar joggingbuxur, 20 peysur, 20 boli, 20 hlýraboli, 8 kjóla, 7 jakka og fleiri brjóstahaldara en telst eðlilegt. Ég geri mér vel grein fyrir því að ég geng ekki í helmingnum af þessu.

Núna þar sem ég er að hætta í vinnunni neyðist ég samt til að taka mér annað fólk til fyrirmyndar. Þar á meðal Jóakim Aðalönd.

Annars var þetta mjög ánægjuleg veisla. Fámennt, en góðmennt. Mikið borðað ... og ropað.

Svo fór ég heim til Ásgerðar og gisti þar með Freyju. Fékk lítinn svefn, enda var hringt í mig kl. 08:00 og beðið mig um að koma á aukavakt. Efa að það sé 12.000 króna virði að eyðileggja á sér bakið, éta á sig gat og vera feitur.

2 comments:

Anonymous said...

hey ég er að fara að kaupa afmælisgjöfina þína í vikunni frá okkur öllum ;) þú verður bara að bíða kelling! :P

Jóhanna said...

Þú þekkir mig.

Ég er afskaplega þolinmóð :)