Já góðir hálsar. Núna nálgast endalokin á páskafríinu óðum.
Fór á ball á sunnudaginn. Hver djammar á páskadag? Alveg ágætt ball. Gaman að hitta fólk sem maður sér aldrei.
Í kvöld var ég á rúntinum. Eina skemmtunin sem er í boði hér á þessum útkjálka. Ég keyrði meiraðsegja. Ylfa, Magnús, Lára og Ásgerður eru frábærir félagar og voru alls ekki til að skemma kvöldið fyrir mér. Fórum samt fjórum sinnum í sjoppu. Ég er ekki feit.
Kvöddum Ásgerði sem er að fara að fljúga aftur heim í fyrramálið. Ég á ekki eftir að sjá hana neitt fyrren í ágúst. Þ.e.a.s. ef ég fer til Danmerkur í ágúst. Sumarvinnan í Ölver verður því að vissu leyti félagslegt sjálfsmorð. En ég meina, ég með þroska á við 5 ára ætti alveg að finna mig þar.
Ég ætla að enda hér með frábærri mynd í lélegum gæðum af mér og bestu vinkonum mínum í óvissuferðinni eftir að síðasta samræmda prófinu lauk.
http://s3.amazonaws.com/photoape/7064/7064_10396_1175807302414_photo_vissufer10bekkjar017jpg.jpg?AWSAccessKeyId=0RC0190437NH01ZYT002&Expires=1176176975&Signature=mrvOGwQagmTlVs7m8ZcotYmEG3Q%3D
Já, ég kann ekki að setja myndir hérna inn ennþá.
p.s., ef ég er ekki óheppnasta manneskja í heimi, þá veit ég ekki hvað.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
hey...ég get ekki séð myndina :S kemur bara e-ð bull =/
en hey skóli á morgun veiveivei!!! ;P
æji ég kann ekkert að laga þetta :P
ég hlakka svooooo til að byrja í skólanum!! :D hehe
Til að setja inn myndir á blogger.com er best að skrifa bara html-kóðann, ég reyndi einhverntíman að nota þennan flýtilink sem er gefinn í valmyndinni á stjórnborðinu á blogger og það gaf ekki góða raun. Til að setja inn mynd þá skrifaru semsé >img src="urliðámyndinakemurhérna.jpg"< nema goggarnir (hornklofarnir?) eiga að vera akkúrat öfugt, þ.e. þessi sem er að aftan hjá mér að framan og öfugt, og þá birtist myndin. Annars eru leiðbeiningar um html skipanir á http://hugi.is/info :)
Heyrðu takk ... ég finn útúr þessu :)
Post a Comment