Ég ætlaði að vera rosalega dugleg í páskafríinu. Ég ætlaði að:
- Lesa alla Egils-sögu og glósa hana
- Glósa alla Snorra-Eddu
- Glósa restina af sögubókinni
- Læra helling af lesinni stærðfræði
- Klára að reikna restina af stærðfræðibókinni
- Halda upp á afmælið mitt
- Fara í Bláa lónið
Ég á bara eftir að standa við það að halda uppá afmælið mitt. Á morgun. Keypti inn í dag. Þarf örugglega ekkert að borða næstu dagana á eftir.
Það er ekki fyrr en á kvöldin að ég fæ samviskubit yfir því hvernig dagurinn hefur farið. Þar á móti er ég að hitta stelpurnar, en þær hef ég vanrækt á meðan námið hefur gengið fyrir. Kannski bara tími til kominn að vanrækja bækurnar og rækta vináttuna.
Það er samt alveg sjúklega notalegt að hanga bara.
,, Já ég fíla geðveikt gaura sem vilja kúra, en samt fíla ég ekki gaura sem nenna ekki að kúra.'' - Sagði Anna Kvaran ....
3 comments:
Til hamingju með nýtt og glæsilegt blogg! Vonandi gengur þér betur að nota blogspot kerfið en bróður þínum, sbr. http://gungun_.blogspot.com/ og http://gungun-.blogspot.com/ :)
Vonandi var þetta ekki kaldhæðni ... :D
haha ertu að segja að þetta hafi verið ljóskulegt?
Kveðja Anna KVaran
Post a Comment