24/04/2007

S eða D?

Já góðir hálsar. Ég er að gera þessa færslu í annað skiptið af því að ég kann ekki neitt.

Sauð pylsur í fyrsta skipti í gær. Bauð Láru í pítsu áðan. Kannski eru einhver húsmæðragen í mér eftir allt saman.

Þýskt munnlegt próf í dag. Nicht gut.

Ég er búin með allar seríurnar af Sex in the City. Ég grét þegar ég sá síðasta þáttinn fyrir 3 árum og ég grét líka núna.

Ég er byrjuð að læra undir vorprófin með nánast enga heimavinnu á bakinu á meðan fjölbrautaskólanemendum er drekkt í ritgerðum og prófum í síðustu vikunni. Stundum er bekkjarkerfið alls ekki svo slæmt.

Þyri á bara eftir að kenna mér í 2 kennslustundir í viðbót, þá er ég orðin stúdent í dönsku. Loksins, eftir 6 ára nám.

Sumarið mitt verður vonandi æðislegt. Það er komið plan fyrir það nú þegar.

Eftir próf fer 1 vika í að fara í aðgerð og jafna mig.
Svo vinn ég í Ölver í 7 vikur.
Fer til Englands í 2 vikur.
Fer til Danmerkur í 1 viku.
Og svo byrja ég í 5.bekk. Vonandi.

Þorgerður Katrín kom í skólann í hádeginu í dag. Hún er ekki eins full af skít og ég bjóst við. Hvort á ég að kjósa Samfylkinguna eða Sjálfstæðisflokkinn í vor? Það er ekkert mikið því til fyrirstöðu að ég kjósi Sjálfstæðisflokkinn. Bara Íraksstríðið og Ragnheiður Elín Árnadóttir. Samt ...

Núna þarf ég að læra, borða nammi, taka til og fara í sturtu.

Ég er alltaf að lifa sama daginn, aftur og aftur.

8 comments:

Anonymous said...

hæ...áttu allar seríurnar af sex and the city? ef svo er þá máttu alveg lána méR!! pretty please!:D

Jóhanna said...

Ég læt eins og ég hafi aldrei séð þetta komment.

Mwezi said...

Hver er Ragnheiður Elín Árnadóttir?

Og þó að fólk virðist almennt ekki hafa fattað það ennþá þá er Ísland ekki í stríði við Írak.

Anonymous said...

heyrðu góða!! afhverju viltu ekki lána mér? ég þarf bara til að sitja inná boxið mitt:P annað ekki lofa meiraðsegja að horfa ekki á diskana!:o.

Jóhanna said...

Ragnheiður Elín Árnadóttir er í 5.sæti í suðvesturkjördæmi.

Ég veit.

Ókei, Anna .. þú mátt fá það =)

Unknown said...

http://www.ragnheidurelin.is - 5ta sæti, sem þýðir að hún kemst ekkert inn, kjánaprik.

Þar sem að hún kemst ekki á þing, og Ísland er ekki í stríði við Írak, þá er ekkert því til fyrirstöðu að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.

Þorgerður Katrín er mjög viðkunnanleg. Meira að segja í eigin persónu utan kosningaáróðurs.

Anonymous said...

JEEESSS!!! You made my day;D

Jóhanna said...

Ertu viss um að hún komist ekki inná þing?

Anna, hafðu bara samband um helgina. Ég verð á Akranesi þá =)